157. löggjafarþing — 113. fundur,  1. júní 2026.

kostnaður við þjóðaratkvæðagreiðslu og stöðugleikareglan.

[11:01]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Í ljósi þess að hæstv. utanríkisráðherra var að koma af fundi með fjárhagsráði þá langaði mig — (ÞKG: Þjóðhagsráði.) — fyrirgefið, ég heyrði fjárhagsráði en ég ætla engu að síður að spyrja út í atriði sem hæstv. ráðherra ætti að vera fullkunnugt um, stöðugleikaregluna, því að hún hefur ítrekað talað fyrir því að þessi ríkisstjórn standist stöðugleikaregluna, að fjármál þessarar ríkisstjórnar verði ekki látin brjóta stöðugleikaregluna. Hins vegar liggur það fyrir að ef kostnaður við þjóðaratkvæðagreiðsluna hefði verið inni í síðustu fjárlögum þá hefðu fjárlögin ekki staðist stöðugleikaregluna. Því langar mig að spyrja hæstv. ráðherra: Hvað hyggst ríkisstjórnin gera? Ætlar hún að spara annars staðar, og hvar þá, til að brjóta ekki stöðugleikaregluna? Eða ætlar hún að brjóta stöðugleikaregluna með því að fara í þennan kostnað við þjóðaratkvæðagreiðsluna?

Í öðru lagi langaði mig að spyrja í fyrri umferð hvort hæstv. ráðherra sé tilbúinn til þess að beita sér fyrir því að þjóðin fái aðgang að leynigögnunum, því að nú liggur fyrir að það er mjög auðvelt ef það er eitthvað í þessum gögnum sem hæstv. ráðherra telur að megi alls ekki koma fyrir augu þjóðarinnar — þá tel ég að þjóðin eigi rétt á að fá sem mestar upplýsingar áður en hún tekur ákvörðun í ágúst. Því spyr ég: Er hæstv. ráðherra tilbúinn til að beita sér fyrir því að þjóðin fái aðgang að þessum gögnum?