kostnaður við þjóðaratkvæðagreiðslu og stöðugleikareglan.
Frú forseti. Ég vil benda á að það kom ekkert svar við því hvernig ætti að bregðast við ef stöðugleikareglan er brotin þannig að ég vonast til að hæstv. ráðherra komi inn á það í seinna svari. Hins vegar kemur hæstv. ráðherra aftur og aftur hingað upp og talar eins og gjaldmiðlaskýrslan innihaldi eitthvað allt annað en hún gerir. Ég vil bara benda hæstv. ráðherra á að kannski lesa þessa skýrslu og kannski lesa líka grein eftir Jón Helga Egilsson sem fer ágætlega yfir þetta, því að það er ekki þannig að skýrslan segi að það verði varanlegur fjárhagslegur ábati. Skýrslan er nefnilega ekki afgerandi um að það sé betra fyrir okkur að taka upp evru. Annað eru hreinar blekkingar, því skýrslan segir það ekki. Og mig langaði að spyrja hérna í ljósi þess að skýrslan er kannski ekki svo hagfelld fyrir þessa ríkisstjórn: Er það ástæðan fyrir því að hún var ekki birt almenningi fyrr en á föstudaginn? Skýrslan var tilbúin 13. maí og hún var rædd í ríkisstjórn daginn eftir atkvæðagreiðsluna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Af hverju var hún rædd þá? Af hverju var hún ekki birt fyrr? Er það af því að hún er ekki hagstæð ríkjandi stjórnvöldum?