157. löggjafarþing — 113. fundur,  1. júní 2026.

kostnaður við þjóðaratkvæðagreiðslu og stöðugleikareglan.

[11:06]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegur forseti. Stöðugleikareglan, svo ég svari öllu, mun halda. Það er eindreginn ásetningur og markmið þessarar ríkisstjórnar að skila hallalausum fjárlögum árið 2027. Það er fyrst og síðast til hagsbóta fyrir heimilin í landinu, fyrirtækin og atvinnulífið og við fengum einmitt brýningu í Þjóðhagsráði í þeim efnum, ekki síst frá atvinnulífinu. Gjaldmiðlaskýrslan er algjörlega afgerandi. Við fengum hana í ríkisstjórn á föstudaginn, hún var birt strax eftir að ríkisstjórnin fékk hana í hendur og ég vil hvetja, ekki síst í ljósi þessarar mistúlkunar eða mislesturs í stjórnarandstöðunni, að hvetja þau öll til þess að mæta á ráðstefnuna í Hörpu sem hæstv. fjármálaráðherra stendur fyrir ásamt skýrsluhöfundum og m.a. fyrrum seðlabankastjóra Króatíu. Það væri ágætt ef hv. þingmenn myndu hlusta vel á það sem þar kemur fram. Niðurstaðan er þessi: Krónan ýkir sveiflur í stað þess að jafna þær og þegar áföll dynja yfir gerir krónan áföllin verri. Þetta kemur alveg skýrt fram í skýrslunni fyrir utan allan þann beina kostnað sem ríkissjóður þarf að standa undir til að halda við krónunni, tugi milljarða sem ég vil frekar að fari í velferðarkerfið, innviði og fleira sem er öllum íslenskum heimilum til hagsbóta. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)