157. löggjafarþing — 113. fundur,  1. júní 2026.

jöfn staða og jafn réttur kynjanna.

297. mál
[11:10]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Málið var að sjálfsögðu til umræðu í allsherjar- og menntamálanefnd. Þar var farið ítarlega yfir það og gögn frá háskólanum skoðuð. Það hefur komið í ljós það sem hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir hefur haldið fram árum saman, að jafnlaunavottunin hefur ekki skilað miklu öðru en auknum kostnaði og meiri flækjum. Þetta er íþyngjandi fyrir fyrirtæki, sérstaklega minni fyrirtæki sem eru ekki með mannauðsdeildir. Hér er að einhverju leyti gengið til baka, sem er ágætt, en ég sé ekki fyrir mér skýrslu á þriggja ára fresti. Í stað þess að hafa þetta 100 manna fyrirtæki hefðum við átt að hafa það þannig að þetta væri ekki íþyngjandi fyrir fyrirtækin. Fyrirtæki sem eru með 100 manns í vinnu eru með deildir innan fyrirtækjanna sem geta tekið þetta án þess að þurfa að kaupa utanaðkomandi þjónustu þannig að við hefðum átt að ganga enn lengra þarna í þessu máli. Ég óska hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur til hamingju með þetta mál, að hafa komið á þennan stað.