jöfn staða og jafn réttur kynjanna.
Virðulegur forseti. Ég tek heils hugar undir þau markmið að Íslendingar fái jöfn laun óháð kyni en spurt er hvernig stjórnvöld hyggist stuðla að þeim markmiðum. Það var framan af gert með jafnlaunakerfinu sem hafði samkvæmt athugunum og úttektum engin áhrif í rétta átt en kostaði engu að síður samfélagið tugi milljarða króna. Stjórnvöld eru ekki tilbúin til þess að leggja þetta kerfi af heldur breyta því í nýtt kerfi sem sömuleiðis felur í sér íþyngjandi eftirlit ríkisvaldsins með fyrirtækjum þótt óljóst sé hver ávinningurinn er. Það kerfi er illskárra, það verður að segjast. Að því marki tel ég tækt að styðja þá breytingu, en mun betur hefði farið á því að stíga skrefinu lengra og halda áfram að minnka svona inngrip ríkisvaldsins í starfsemi frjálsra fyrirtækja þegar ávinningurinn hefur sýnt sig að er enginn og gengur, að því er virðist, bara út á að láta (Forseti hringir.) hv. stjórnmálamönnum sem eiga að bera ábyrgð á málinu líða vel með sjálfa sig og koma ágætlega út á fundum (Forseti hringir.) og í umræðum en ekki að ná raunverulegum árangri (Forseti hringir.) fyrir Íslendinga.