jöfn staða og jafn réttur kynjanna.
Virðulegi forseti. Ég get ekki komið nógu oft hingað upp til að óska okkur Íslendingum og auðvitað hæstv. ráðherra til hamingju með það að við leggjum nú af jafnlaunavottun í núverandi mynd. Við Sjálfstæðismenn höfum stutt þá breytingu og greitt henni atkvæði okkar en við lokaafgreiðslu þessa máls munum við þó sitja hjá. Við getum ekki stutt nýtt jafnlaunavottunarkerfi þótt það sé léttara í sér og þess vegna betrumbót. Við lögðum til breytingartillögu hér við meðferð málsins, sem meiri hlutinn felldi, um að nýja kerfið yrði hreinlega valkvætt. En við getum hreinlega ekki greitt atkvæði okkar með nýju tilraunaverkefni á kostnað íslensks atvinnulífs.