brottfararstöð.
Herra forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um brottfararstöð. Með frumvarpinu er kveðið á um heildarlög um brottfararstöð, um þær meginreglur sem gilda um vistun útlendinga þar og um réttindi þeirra og skyldur. Þá eru lagðar til breytingar á öðrum lögum, þar á meðal lögum um útlendinga, nr. 80/2016, m.a. varðandi vistun á brottfararstöð og til að innleiða skimunarreglugerð Evrópusambandsins.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Samkvæmt skilgreiningu í frumvarpinu er brottfararstöð staður þar sem útlendingur sætir frelsisskerðingu samkvæmt lögum um útlendinga vegna ákvörðunar um að hann skuli yfirgefa landið og þegar mál sem getur leitt til slíkrar ákvörðunar er til meðferðar hjá stjórnvöldum. Líkt og rakið er í greinargerð með frumvarpinu byggjast ákvæði frumvarpsins á IV. kafla tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins?2008/115/EB?, svokölluð brottvísunartilskipun, sem Ísland er skuldbundið af á grundvelli þátttöku í Schengen-samstarfinu. Þá er vísað til þess að frumvarpið sé samið að fyrirmynd norskra laga.
Meiri hlutinn tekur undir nauðsyn þess að bregðast við því úrræðaleysi sem einkennir stöðuna í dag þar sem eina leið lögreglu í vissum tilvikum er að fá þá útlendinga sem flytja á úr landi, þ.e. í þeim tilvikum þar sem tryggja þarf návist þeirra, úrskurðaða í gæsluvarðhald án þess að fyrir liggi grunur um refsiverða háttsemi. Ljóst er að þegar einstaklingum er synjað um dvöl hér á landi ber þeim að yfirgefa landið. Þá undirstrikar meiri hlutinn að frelsissvipting einstaklinga samkvæmt frumvarpi þessu er ekki í refsivörsluskyni vegna gruns um refsiverða háttsemi heldur almennt í því skyni að tryggja að viðkomandi einstaklingar séu til staðar við framkvæmd ákvörðunar um að viðkomandi skuli yfirgefa landið og þegar mál sem getur leitt til slíkrar ákvörðunar er til meðferðar hjá stjórnvöldum.
Meiri hlutinn tekur undir nauðsyn þess að bregðast við því úrræðaleysi sem einkennir stöðuna í dag þar sem eina leið lögreglu í vissum tilvikum er að fá þá útlendinga sem flytja á úr landi, þ.e. í þeim tilvikum þar sem tryggja þarf návist þeirra, úrskurðaða í gæsluvarðhald án þess að fyrir liggi grunur um refsiverða háttsemi. Ljóst er að þegar einstaklingum er synjað um dvöl hér á landi ber þeim að yfirgefa landið. Þá undirstrikar meiri hlutinn að frelsissvipting einstaklinga samkvæmt frumvarpi þessu er ekki í refsivörsluskyni vegna gruns um refsiverða háttsemi heldur almennt í því skyni að tryggja að viðkomandi einstaklingar séu til staðar við framkvæmd ákvörðunar um að viðkomandi skuli yfirgefa landið og þegar mál sem getur leitt til slíkrar ákvörðunar er til meðferðar hjá stjórnvöldum.
Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hlutinn árétta sérstaklega:
Meiri hlutinn undirstrikar mikilvægi þess að lagt hafi verið mat á samræmi frumvarpsins við ákvæði stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, og tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í greinargerð með frumvarpinu hvað það varðar. Við umfjöllun nefndarinnar um málið var ítarlega fjallað um stöðu þess viðkvæma hóps sem kann að falla undir úrræðið og nauðsyn þess að tryggja að mannréttindi hópsins séu ávallt höfð að leiðarljósi.
Ljóst er að ákvörðun um vistun á brottfararstöð skal vera það úrræði þegar kemur að framkvæmd frávísana og brottvísana sem einungis skal grípa til þegar fullnægjandi mat liggur fyrir um að vægara úrræði muni ekki skila árangri. Við ákvörðun um vistun á brottfararastöð ber stjórnvöldum að taka tillit til hagsmuna og réttinda þeirra sem valdbeiting beinist gegn með hliðsjón af því markmiði sem stefnt er að. Leggja þarf einstaklingsbundið mat á hverja ákvörðun sem tekin er um vistun á brottfararstöð.
Samkvæmt 1. mgr. 67. gr. stjórnarskrárinnar má engan svipta frelsi nema samkvæmt heimild í lögum. Með frumvarpinu er það gert að fortakslausri skyldu að lögregla beri lögmæti ákvörðunar um vistun einstaklinga á brottfararstöð undir héraðsdóm til staðfestingar.
Þá varða þvingunaraðgerðir á borð við líkamsleit og leit í vistarverum, sem mælt er fyrir um í III. kafla frumvarpsins, við ákvæði 71. gr. stjórnarskrárinnar um friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu.
Meiri hlutinn áréttar að allar ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli slíkra lagaheimilda skulu ávallt byggjast á grundvallarreglunni um meðalhóf og skal því aldrei gengið lengra en nauðsyn krefur við beitingu slíkra heimilda til að ná fram því lögmæta markmiði sem að er stefnt hverju sinni.
Loks ber að geta þess að skv. 3. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar skal börnum tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst, sbr. einnig 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr.?19/2013, hér eftir barnasáttmálinn. Nefndin fjallaði ítarlega um stöðu barna samkvæmt frumvarpinu sem gerð verður nánari grein fyrir auk þess sem lagðar eru til breytingar á frumvarpinu.
Að framangreindu virtu telur meiri hlutinn að frumvarpið tryggi réttindi einstaklinga til samræmis við þau lágmarksréttindi sem ákvæði stjórnarskrárinnar kveða á um.
Vík ég þá að umfjöllun nefndarinnar um skilyrði fyrir vistun á brottfararstöð. Samkvæmt 5. gr. frumvarpsins verður heimilt að vista útlending á brottfararstöð á grundvelli skilyrða í lögum um útlendinga.
Í k-lið 1. töluliðar 22. gr. frumvarpsins er lagt til að nýtt ákvæði bætist við lög um útlendinga, þ.e. 114. gr. a, þar sem kveðið verði á um í hvaða tilvikum lögreglu verði heimilt að taka ákvörðun um að frelsissvipta útlendinga og vista á brottfararstöð.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að skilyrðin í a–i-liðum ákvæðisins séu mörg samhljóða skilyrðum í 115. gr. gildandi laga um útlendinga, sem kveður á um heimild til að handtaka útlending og úrskurða hann í gæsluvarðhald, að uppfylltum sambærilegum skilyrðum.
Meiri hlutinn hefur skilning á þeim sjónarmiðum sem fram hafa komið um málið og tekur undir þær áherslur sem eru til að mynda tilgreindar í umsögn Rauða krossins á Íslandi og Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um að frelsi fólks á flótta skuli vera hið eðlilega viðmið.
Meiri hlutinn telur þó þörf á að bregðast við þeirri stöðu sem fyrirkomulag hér á landi er í með því að veita heimildir til vistunar á brottfararstöð í afmörkuðum tilvikum en undirstrikar að það beri að beita vægari úrræðum þegar unnt er og að heimild til vistunar beri að beita sem lokaúrræði og í eins stuttan tíma og mögulegt er.
Nefndin fjallaði sérstaklega um vægari úrræði á grundvelli laga um útlendinga og beitingu þeirra. Meiri hlutinn áréttar að með frumvarpinu er verið að leggja til breytingar á lögum um útlendinga, nr.?80/2016, og þar af leiðandi skipti máli að þær heimildir sem kveðið er á um í frumvarpinu verði túlkaðar í samræmi við önnur ákvæði laganna, m.a. ákvæði sem kveða á um heimild fyrir beitingu vægari úrræða en felast í vistun á brottfararstöð.
Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu verður heimilt að vista útlending á brottfararstöð ef fullnægjandi mat hefur farið fram um að vægari úrræði muni ekki skila árangri. Ekki þurfi að sýna fram á að öll vægari úrræði hafi verið fullreynd heldur telst fullnægjandi að mat hafi farið fram um að ekkert vægara úrræði dugi til.
Fyrir nefndinni var fjallað um hvort þörf væri á að kveða nánar á um skyldu til að beita vægari úrræðum í lögunum sjálfum.
Samkvæmt núgildandi lögum um útlendinga er mælt fyrir um önnur þvingunarúrræði í 105., 109. og 114. gr. Í greinargerð er vísað til þess að þau úrræði hafi ekki reynst fullnægjandi í öllum tilvikum til að tryggja að viðkomandi láti sig ekki hverfa innan lands og fari jafnvel af landi brott þar sem landamæraeftirlit er almennt ekki á innri landamærum. Í gildandi lögum er því þegar kveðið á um vægari úrræði.
Í frumvarpinu er skýrlega áréttuð sú meginregla, í nýrri 114. gr. b, að óheimilt verði að taka ákvörðun um vistun útlendings á brottfararstöð ef það felur í sér ósanngjarna ráðstöfun með hliðsjón af eðli máls og atvikum að öðru leyti eða ef talið er fullnægjandi að útlendingurinn sæti þess í stað öðru vægara úrræði samkvæmt XIII. kafla. Vægari úrræði geta t.d. verið haldlagning skilríkja, tilkynningarskylda eða krafa um að útlendingur haldi sig á tilteknum stað eða svæði.
Ávallt þurfi því að meta hvort vistun sé nauðsynleg og í réttu hlutfalli við það markmið sem að er stefnt. Þá þurfi að leggja mat á sérstakar aðstæður viðkomandi ásamt heilsufari til að meta hvort vistun gæti sett hann í sérstaklega viðkvæmar aðstæður eða í hættu og hvort viðkomandi þurfi sérstaka umönnun, athygli eða aðstoð. Ávallt þurfi að fara fram einstaklingsbundið mat áður en ákvörðun um vistun er tekin. Þá þurfi flutningur útlendings úr landi að meginreglu til að vera raunhæfur kostur frá upphafi til þess að vistun sé yfirhöfuð réttlætanleg.
Í minnisblaði frá dómsmálaráðuneyti, dagsettu 12. mars 2026, kemur fram að ekki var talin þörf á að kveða á um frekari vægari úrræði umfram gildandi heimildir. Þá kemur jafnframt fram að samkvæmt núgildandi lögum sé þegar til staðar heimild til að framlengja frest til sjálfviljugrar heimfarar.
Meiri hlutinn tekur undir hvað þetta varðar og telur ljóst að vistun útlendings á brottfararstöð skuli aðeins beitt þegar ekkert annað úrræði dugar til. Að framangreindu virtu og í ljósi umsagna sem liggja fyrir telur meiri hlutinn þó ástæðu til að það verði gert skýrara á grundvelli laganna til hvaða vægari úrræða sé vísað í lögum um útlendinga og leggur til breytingu þess efnis.
Vík ég nú að vistun fjölskyldna með börn á brottfararstöð. Samkvæmt frumvarpinu er lagt til að sérstakar reglur, með strangari skilyrðum, gildi um að vista fjölskyldur með börn á brottfararstöð, samanber nýja 114. gr. e við lög um útlendinga. Þannig verði gerðar strangari kröfur til mats á nauðsyn þess að vista barn á brottfararstöð auk þess sem færri tilvik munu gilda um það hvenær megi vista barn þar. Þá eru tímamörk vistunar barna skýrt afmörkuð og mun skemmri en vistunar fullorðinna. Óheimilt verður að vista fylgdarlaus börn á brottfararstöð og barn verður aldrei vistað þar án fjölskyldu sinnar.
Líkt og rakið er í greinargerð með frumvarpinu eru þvingaðir flutningar einstaklinga úr landi flóknir, taka talsverðan tíma í undirbúningi og eru kostnaðarsamir. Samkvæmt upplýsingum frá heimferða- og fylgdadeild ríkislögreglustjóra hafa verið áskoranir við flutning fjölskyldna úr landi. Í því ljósi þykir þörf á að mæla fyrir um heimild til vistunar fjölskyldna með börn á brottfararstöð en þó að uppfylltum strangari skilyrðum og í mun skemmri tíma en á við um fullorðna einstaklinga. Almennt skal vistun aðeins fara fram til að tryggja yfirvofandi flutning fjölskyldu með barn úr landi. Slík ráðstöfun kemur aðeins til af brýnni nauðsyn og á að vera allra síðasta úrræði sem beitt er. Vakin er athygli á því að á grundvelli núgildandi laga hefur reyndin verið sú að í vissum tilvikum hefur eina haldbæra úrræði yfirvalda til að tryggja framkvæmd ákvörðunar um þvingaðan brottflutning barnafjölskyldu verið að ráðstafa barni í tímabundið fóstur hjá barnaverndaryfirvöldum samhliða því að forráðamaður barns er úrskurðaður í gæsluvarðhald. Með frumvarpinu er ætlunin að setja skýran lagagrundvöll fyrir vistun barna í ákveðnum takmarkatilvikum til að tryggja að brottflutningur geti farið fram.
Fyrir nefndinni komu fram alvarlegar athugasemdir við heimildir frumvarpsins sem kveða á um vistun barna á brottfararstöð. Nefndinni bárust umsagnir frá mannréttindafulltrúa Evrópuráðsins og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna um frumvarpið, einkum hvað varðar réttindi barna. Í erindi mannréttindafulltrúa Evrópuráðsins er bent á að Mannréttindadómstóll Evrópu hafi ítrekað undirstrikað sérstaklega viðkvæma stöðu barna vegna innflytjendastöðu þeirra. Dómstóllinn hefur vísað til þess að forðast skuli frelsissviptingu barna sem skuli aðeins beitt sem lokaúrræði ef fyrir liggur, á grundvelli einstaklingsmats, að engin vægari úrræði komi að gagni og það sé algjörlega nauðsynlegt á grundvelli meðalhófs.
Í umsögn Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna kemur fram að það geti aldrei talist barni fyrir bestu að vera hneppt í varðhald, sem er jafnframt áréttað í fleiri umsögnum, m.a. frá Barna- og fjölskyldustofu.
Umboðsmaður barna, UNICEF á Íslandi og Barnaheill benda á sömu sjónarmið og undirstrika að banna eigi varðhald á börnum vegna stöðu þeirra eða foreldra þeirra sem útlendinga og lögfesta aðra valkosti fyrir fjölskyldur.
Meiri hlutinn áréttar þá lögbundnu skyldu að það sem er barni fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang þegar um er að ræða vistun þess, samanber ákvæði frumvarpsins sem og barnasáttmálans.
Þá er kveðið á um í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga að ákvörðun sem varðar barn skuli tekin með hagsmuni þess að leiðarljósi.
Í þessu samhengi ítrekar meiri hlutinn að í framkvæmd skuli ítarlegt og einstaklingsbundið mat ætíð fara fram þar sem tekið er tillit til aldurs, aðstæðna og hagsmuna barnsins. Börn verði aldrei vistuð ein á brottfararstöð en hugað verði að einingu fjölskyldunnar.
Í því samhengi tekur meiri hlutinn undir sjónarmið sem fram koma í umsögn Barna- og fjölskyldustofu um að nauðsynjamat um frelsissviptingu barna í slíkum tilvikum þurfi að snúa að fjölskyldunni í heild strax í upphafi, þ.e. að hin ströngu skilyrði um vistun barna þurfi einnig að ná til ákvarðana sem snúa að fjölskyldunni í heild í þeim tilvikum sem ákvörðun hefur áhrif á barn.
Í ljósi framangreinds telur meiri hlutinn þörf á að bregðast við og leggur til breytingar á frumvarpinu hvað varðar heimild til vistunar barna á brottfararstöð, sem gerð verður nánari grein fyrir hér síðar.
Ég ætla þá að fjalla stuttlega um stöðu viðkvæmra hópa á brottfararstöð. Samkvæmt 8. gr. frumvarpsins skal þjónusta á brottfararstöð taka mið af þörfum og stöðu vistmanna. Einkum skal huga að aðstæðum einstaklinga í sérstaklega viðkvæmri stöðu.
ÖBÍ réttindasamtök gagnrýna í umsögn sinni að í frumvarpinu sé ekki vísað til réttinda fatlaðs fólks heldur falli sá hópur undir skilgreiningu einstaklinga í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Telja þau það ekki fullnægjandi til að tryggja mannréttindi fatlaðs fólks samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem hefur nýlega verið lögfestur hér á landi. Þá er í umsögn frá Landssamtökunum Þroskahjálp lýst verulegum áhyggjum af áhrifum frumvarpsins á stöðu og réttindi fatlaðs fólks, og þá sérstaklega fatlaðra barna, sem leita alþjóðlegrar verndar á Íslandi.
Þá var fyrir nefndinni vakin athygli á stöðu fleiri hópa í viðkvæmri stöðu, m.a. árétta Samtökin ’78 viðkvæma stöðu hinsegin fólks á flótta og minna á mikilvægi stuðnings og fræðslu fyrir þann hóp sem getur átt að baki flókna áfallasögu vegna fordóma í heimalandi gegn hinsegin fólki. Því skipti líka máli að allt starfsfólk brottfararstöðvar hafi þekkingu á flókinni stöðu hinsegin fólks á flótta.
Í minnisblaði frá dómsmálaráðuneyti er tekið undir mikilvægi þess að tryggja aðbúnað, öryggi og þjónustu fyrir einstaklinga í viðkvæmri stöðu og að við uppbyggingu og skipulag úrræðisins verði sérstök áhersla lögð á þau sjónarmið.
Meiri hlutinn telur brýnt að í framkvæmd verði tekið fullt tillit til einstaklinga í viðkvæmri stöðu við meðferð þeirra mála og þeim veitt sú aðstoð og tillit sem aðstæður þeirra krefjast og í samræmi við mannréttindasamninga og gildandi lög.
Með frumvarpinu er einnig verið að innleiða reglugerð (ESB) nr.?2024/1356, svokallaða skimunarreglugerð. Reglur skimunarreglugerðar varða komu fólks til landsins, en fram komu athugasemdir frá umsagnaraðilum um að hægt verði, í undantekningartilvikum, að vista útlendinga sem sæta skimun í brottfararstöð.
Skimunarreglugerðin kveður á um verklag til að skima ríkisborgara þriðju ríkja á ytri landamærum Schengen-svæðisins, m.a. til upplýsingaöflunar, heilsufarsskoðunar, til greiningar á því hvort viðkomandi sé í viðkvæmri stöðu eða til öryggisathugunar.
Meðal þeirra sem sæta skimun samkvæmt ákvæðinu eru útlendingar sem stöðvaðir eru í ólögmætri för yfir landamæri, þeir sem sækja um alþjóðlega vernd á ytri landamærum og uppfylla ekki komuskilyrði og þeir sem dvelja ólöglega hér á landi og eru taldir hafa komið inn á Schengen-svæðið án þess að hafa sætt skimun. Skimunarreglugerðin gerir jafnframt kröfu um að tryggt verði að útlendingur sem sætir skimun sé til staðar í skimunarferlinu.
Fyrir nefndinni komu fram sjónarmið um að frumvarpið gangi lengra en skimunarreglugerðin, sem gerir eingöngu kröfu um tilkynningarskyldu útlendings eða um að hann haldi sig á tilteknu svæði í skimunarferli en gerir ekki kröfu um vistun á brottfararstöð.
Meiri hlutinn telur mikilvægt að uppfylla Schengen-skuldbindingar sem varða innleiðingu á skimunarreglugerð Evrópusambandsins. Fyrir liggur að gerð er krafa um að skimun á ytri landamærum skuli fara fram án tafar og skuli vera lokið innan sjö daga og er sá tímafrestur ófrávíkjanlegur.
Þá telur meiri hlutinn brýnt að einstaklingar sem sæta skimun verði að jafnaði ekki vistaðir á brottfararstöð en ef til þess kemur, í ljósi þess að viðkomandi sinni ekki tilkynningarskyldu eða ákvörðun um að dvelja á ákveðnum stað, veiti ekki upplýsingar um auðkenni sitt eða gefi rangar upplýsingar, verði það aðeins gert í undantekningartilvikum og ávallt sem síðasta úrræði.
Fyrir nefndinni og í umsögnum var ítrekað fjallað um skort á sjálfstæðu og reglubundnu eftirliti, umfram þann möguleika að geta beint kvörtun til umboðsmanns Alþingis og heimild til að kæra ákvarðanir til ráðherra.
Aðildarríkjum skv. 10. gr. skimunarreglugerðarinnar ber að koma á fót óháðu eftirlitskerfi til að tryggja að grundvallarréttindi séu virt. Í frumvarpinu er ekki mælt sérstaklega fyrir um að komið sé á fót sjálfstæðu eftirlitskerfi hvað þetta varðar. Lagt er til að ráðherra kveði í reglugerð nánar á um skimun og þar á meðal um eftirlit með grundvallarréttindum fólks sem sætir skimun.
Í minnisblaði frá dómsmálaráðuneyti, dagsettu 12. mars 2026, er að finna umfjöllun um markmið eftirlitsins og hvernig gert sé ráð fyrir að það fari fram. Þar kemur m.a. fram að markmið eftirlitsins sé að tryggja að mannréttindi útlendinga sem sæta skimun séu virt og að framkvæmd ferlisins samræmist reglum um meðalhóf, réttaröryggi sem og alþjóðlegum mannréttindaskuldbindingum. Með hliðsjón af þeirri umfjöllun telur ráðuneytið að framkvæmd eftirlitsins falli vel að lögbundnu hlutverki Mannréttindastofnunar Íslands.
Meiri hlutinn telur þörf á að það verði tekið til nánari skoðunar af hálfu ráðuneytisins hvernig slíku eftirliti verði best fyrir komið með það að markmiði að tryggja mannréttindi útlendinga sem sæta þvingunarúrræðum á grundvelli laga um útlendinga. Ljóst er að umboðsmaður Alþingis gegnir veigamiklu hlutverki hvað varðar eftirlit með réttindum borgara gagnvart stjórnvöldum og með því hvort og hvernig réttindi frelsissviptra einstaklinga eru virt.
Meiri hlutinn telur að ef fela eigi stofnun sem starfar á vegum Alþingis að fara með eftirlit af þeim toga sem hér um ræðir, þ.e. umfram það eftirlit sem er þegar til staðar, þá verði það ekki gert nema að undangenginni könnun á því hvort það falli að hlutverki stofnunarinnar og heimildum hennar. Jafnframt verði að skoða inntak eftirlitsins og hvernig það samræmist sjálfstæði þessara stofnana þingsins. Í því sambandi ber að hafa í huga að ekki má líta á eftirlit á vegum þeirra sem lið í athöfnum framkvæmdarvaldsins heldur sem fyrirbyggjandi aðgerð. Í framkvæmd hefur það verið forsætisnefnd Alþingis sem hefur í nánu samstarfi við stofnanir þingsins lagt til breytingar á starfssviði þeirra og Alþingi síðan samþykkt með breytingum á lögum um þær.
Meiri hlutinn áréttar að brýnt sé að það verði skoðað heildstætt hvernig beri að tryggja fullnægjandi, reglubundið og sjálfstætt eftirlit þegar kemur að þvingunarúrræðum á grundvelli laga um útlendinga.
Aðgengi fjölmiðla og mannúðarsamtaka að brottfararstöð. Í umsögn Blaðamannafélags Íslands um málið eru gagnrýndar breytingar sem voru gerðar á frumvarpinu frá því að það var birt í samráðsgátt stjórnvalda. Í fyrri útgáfu hafi verið kveðið á um heimild fjölmiðla til að taka viðtöl við vistmenn í brottfararstöð með samþykki þeirra en slíka heimild sé ekki að finna í frumvarpinu eins og það liggur nú fyrir.
Rauði krossinn á Íslandi og Samtökin ’78 benda einnig á að búið sé að fella brott umrætt ákvæði þar sem var jafnframt kveðið á um heimild fyrir félagasamtök til að heimsækja brottfararstöð. Þau benda á að heimsóknir félagasamtaka geti þjónað þeim tilgangi að hafa eftirlit með aðbúnaði og að mannréttindi vistmanna séu virt sem og að mæta sálfélagslegum þörfum þeirra sem þar eru vistaðir.
Meiri hlutinn undirstrikar að kveðið verði skýrt á um það í reglugerð hvernig tryggt verði að viðeigandi stofnanir og félagasamtök, þar á meðal viðurkennd mannúðar- eða mannréttindasamtök, muni eiga kost á að heimsækja brottfararstöð, að tilteknum skilyrðum uppfylltum, til samræmis við alþjóðlegar skuldbindingar, sem og hvað varðar aðgengi fjölmiðla.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að gert verði ráð fyrir að brottfararstöð verði komið upp nærri stærstu landamærastöð Íslands, á Suðurnesjum. Vísað er til þess að mikilvægt verði að eiga samráð við sveitarfélögin á Suðurnesjum við mótun úrræðanna.
Í umsögn frá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum er lögð áhersla á að áður en frumvarpið verði afgreitt þurfi að fara fram heildstætt mat á áhrifum lagasetningarinnar á samfélag og innviði á Suðurnesjum.
Í minnisblaði frá dómsmálaráðuneyti, dagsettu 12. mars 2026, kemur fram að vistun muni ekki leiða til lögheimilistengdra réttinda eða skyldna fyrir viðkomandi sveitarfélag.
Meiri hlutinn hefur skilning á framangreindum sjónarmiðum og áréttar mikilvægi þess að við frekari útfærslu og uppbyggingu á úrræðinu verði tryggt að ráðuneytið eigi gott samráð við sveitarfélög á svæðinu. Í ljósi þess að stærsta landamærastöð Íslands, Keflavíkurflugvöllur, er staðsett á Suðurnesjum sé falið í því aukið hagræði og skilvirkni að staðsetja slík úrræði í nálægð við flugvöllinn líkt og tíðkast einnig í öðrum ríkjum.
Vík ég nú að breytingum sem meiri hlutinn leggur til á frumvarpinu:
Lögð er til breyting er varðar vistun á brottfararstöð þegar önnur úrræði duga ekki til. Líkt og gerð hefur verið grein fyrir komu fram ýmsar athugasemdir fyrir nefndinni hvað varðar heimildir til vistunar á brottfararstöð og vísað var til þess að um væri að ræða of óljósar og matskenndar heimildir og ekki væri skýrt samkvæmt frumvarpinu sjálfu hvaða vægari úrræði þyrftu að hafa komið til skoðunar áður en heimilt yrði að beita svo íþyngjandi heimildum.
Með hliðsjón af þeim athugasemdum sem komu fram fyrir nefndinni við umfjöllun um málið telur meiri hlutinn ástæðu til að kveða skýrar á um í nýrri 114. gr. a að ekki skuli beita ákvæðinu ef tilkynningarskylda eða krafa um að dveljast á ákveðnum stað skv. 114. gr. er talin nægjanleg til að ná því markmiði sem að er stefnt. Slík breyting væri til samræmis við gildandi 2. mgr. 115. gr. laga um útlendinga.
Jafnframt eru lagðar til breytingar er varða aðskildar vistarverur fyrir fjölskyldur með börn. Við umfjöllun nefndarinnar um málið var ítarlega rætt um stöðu barna. Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið um að slíku úrræði skuli eingöngu beitt í undantekningartilvikum og sem lokaúrræði þegar brýna nauðsyn ber til í afmarkaðan tíma og ljóst er að vægari úrræði hafa ekki eða munu ekki duga til. Þá skiptir grundvallarmáli að aðstæður séu þess eðlis að fjölskyldum verði séð fyrir sérstökum vistarverum sem tryggi fullnægjandi friðhelgi þeirra.
Í minnisblaði frá dómsmálaráðuneyti, dagsettu 26. febrúar 2026, eru lagðar til breytingar á frumvarpinu til að bregðast við athugasemdum um málið og til að taka af allan vafa um að tryggja beri fullan aðskilnað fjölskyldna með börn frá öðrum á brottfararstöð og ítreka réttindi barna meðan á vistun stendur.
Í því ljósi tekur meiri hlutinn undir tillögur ráðuneytisins og leggur til breytingar á frumvarpinu sem er ætlað að skerpa á því að fjölskyldur með börn verði aðeins vistaðar í sérstöku húsnæði sem verði eingöngu ætlað þeim og algjörlega aðskilið öðrum vistarverum fyrir einstaklinga. Þannig verði tryggður algjör aðskilnaður þessa viðkvæma hóps frá öðrum einstaklingum sem eru vistaðir á brottfararstöð. Til að tryggja friðhelgi og vernd einkalífs fjölskyldna með börn er kveðið á um að þeim skuli útvegaðar sérstakar vistarverur innan fjölskylduhúsnæðis þannig að hver fjölskylda hafi eigið afmarkað rými, að lágmarki svefnrými. Ákvæðið útiloki þó ekki að fleiri en ein fjölskylda geti deilt sameiginlegri aðstöðu, svo sem eldunaraðstöðu, tómstundarými og þess háttar. Með þessari breytingu sé ætlunin að taka betur mið af þörfum barna og tryggja að fjölskyldur dvelji í umhverfi sem stuðli að viðunandi og mannsæmandi fjölskyldulífi meðan á stuttri vistun stendur.
Meiri hlutinn telur heimild skv. 17. gr. frumvarpsins um að vista barn í öryggisklefa ekki samræmast ofangreindum breytingum. Meiri hlutinn leggur því til að óheimilt verði að vista barn í öryggisklefa.
Meiri hlutinn tekur undir athugasemdir í umsögn Barna- og fjölskyldustofu og áréttar að meginreglan skuli vera sú að beiting þvingunarráðstafana gagnvart börnum sé óheimil en nauðsynlegar heimildir beri að túlka þröngt með vísan til ýtrustu neyðar þegar aðrar vægari ráðstafanir dugi ekki til.
Í minnisblaði frá dómsmálaráðuneyti, dagsettu 26. febrúar 2026, eru lagðar til breytingar til að kveða skýrt á um afþreyingu barna. Meiri hlutinn tekur undir tillögu ráðuneytisins og leggur til að við 4. mgr. 8. gr. frumvarpsins bætist nýr málsliður sem kveði á um að börn skuli eiga kost á að taka þátt í leikjum og afþreyingu sem hæfi aldri þeirra.
Þá er lögð til breyting er varðar sérstakar reglur um vistun barna á brottfararstöð sem lokaúrræði.
Til að koma til móts við ábendingar um að ekki sé skýrt um hvaða vægari úrræði sé að ræða þá leggur meiri hlutinn til breytingu þess efnis að bæta við tilvísun í XIII. kafla laga um útlendinga við ákvæði nýrrar 114. gr. e um sérstakar reglur um vistun barna á brottfararstöð, þannig að enginn vafi leiki á því hvaða vægari ráðstafanir geti verið um að ræða.
Þá eru lagðar til breytingar um heimild starfsfólks brottfararstöðvar til valdbeitingar. Gert er ráð fyrir því að lögreglustjórinn á Suðurnesjum ráði starfsfólk brottfararstöðvar og að allt starfsfólk sem starfi með vistmönnum á brottfararstöð hljóti viðeigandi þjálfun til starfsins sem taki mið af þeim fjölbreytta hópi einstaklinga sem þar kunna að vera vistaðir. Með 11. gr. frumvarpsins er kveðið á um heimild til valdbeitingar á brottfararstöð og tilgreint í hvaða tilvikum starfsfólki er heimilt að beita valdi við skyldustörf ef það telst nauðsynlegt til að koma í veg fyrir nánar tilgreindar aðstæður. Aldrei má ganga lengra í beitingu valds en þörf er á hverju sinni.
Í minnisblaði frá dómsmálaráðuneyti, dagsettu 26. febrúar 2026, er lagt til að kveðið verði skýrt á um það í ákvæðinu sjálfu að einungis starfsfólk brottfararstöðvar sem hefur fengið viðeigandi þjálfun í valdbeitingu hafi heimild til að beita valdi við störf sín. Þar sé um að ræða starfsfólk sem hafi lokið viðeigandi fræðslu og þjálfun í valdbeitingu.
Meiri hlutinn leggur til breytingu á 11. gr. með það að markmiði að skýra enn frekar að eingöngu starfsfólki sem hefur fengið viðeigandi þjálfun í valdbeitingu verði heimilt að beita valdi við skyldustörf sín. Slík heimild skal einungis eiga við þegar það telst nauðsynlegt í tilgreindum tilvikum samkvæmt ákvæðinu, og er þar um tæmandi talningu að ræða. Þá eigi heimild til valdbeitingar eingöngu við þegar vægari úrræði duga ekki til.
Þá leggur meiri hlutinn til að lögreglustjórinn á Suðurnesjum skuli ákveða, að undangengnu heildstæðu mati á hæfi viðkomandi, hvaða starfsmenn hafi heimild til að beita valdi þegar slíkt telst nauðsynlegt. Með því verði tryggt enn betur að einungis starfsmenn sem uppfylla kröfur um þjálfun og hæfni fari með slíka heimild en heimildin verði ekki almenn fyrir allt starfsfólk. Heimildin verði þó tilgreind sérstaklega í starfslýsingu hlutaðeigandi starfsmanna og að því leyti almenn og hluti af starfslýsingu viðkomandi starfsfólks en ekki háð sérstakri heimild í hverju einstöku tilviki.
Meiri hlutinn telur þó sérstaklega brýnt að undirstrika það sem fram kemur í skýringum við ákvæðið í greinargerð, að líta verði á það sem meginreglu að þeir sem munu starfa á brottfararstöð sinni skyldustörfum sínum án valdbeitingar. Þá leggur meiri hlutinn til breytingu á reglugerðarheimild skv. 20. gr. til að skýra nánar hvað skuli kveða á um í reglugerð í tengslum við valdbeitingarheimildir starfsfólks.
Að lokum leggur meiri hlutinn til breytingar er varða skilyrði fyrir vistun á brottfararstöð, þ.e. að vísað verði beint til 105. gr. laga um útlendinga í ákvæði 5. gr. um vistun á brottfararstöð; heimild til að hafa samband við skipaðan talsmann skv. 30. gr. laga um útlendinga; orðalagsbreytingu varðandi ákvæði um skimun vegna ólögmætrar farar yfir ytri landamæri; um málsmeðferð fyrir dómi varðandi kæruheimild til Landsréttar vegna úrskurða dómara um vistun á brottfararstöð, og breytingar á gildistöku en lagt er til að brottfararstöð taki ekki til starfa fyrr en 1. desember 2026.
Þá eru lagðar til nokkrar lagatæknilegar breytingar og lagfæringar á orðalagi sem er ekki ætlað að hafa efnisleg áhrif og þarfnast ekki sérstakrar umfjöllunar.
Vísast að öðru leyti til ítarlegri umfjöllunar um breytingartillögur í áliti meiri hlutans.
Að framansögðu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.
Undir álit meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Víðir Reynisson, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og Sandra Sigurðardóttir.
Herra forseti. Það frumvarp sem við ræðum hér um brottfararstöð er mikilvægt en efni þess er jafnframt viðkvæmt og það varðar hópa sem eru í viðkvæmri stöðu. Ég þakka öllum þingmönnum í allsherjar- og menntamálanefnd fyrir samstarfið hvað þetta mál varðar, mikilvægar umræður og efnismiklar. Einnig þakka ég öllum þeim sem sendu þinginu umsagnir um frumvarpið og þeim gestum sem komu fyrir nefndina. Ég er sannfærður um að þær breytingar sem gerðar voru á frumvarpinu í meðförum nefndarinnar séu til góðs og margar þeirra byggja einmitt á umsögnum og samtali við gesti.
Verði þetta frumvarp að lögum, sem allar líkur eru á, verður regluverk okkar að þessu leyti líkara regluverki nágrannalanda okkar og Evrópusambandsins. Okkur hefur verið legið á hálsi fyrir það að hafa ekki á Íslandi brottfararstöð sem nú verður bætt úr. Notkun hennar verður þó, eins og ég hef farið yfir í þessu nefndaráliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar, lokaúrræði þegar flytja á úr landi útlending sem ekki hefur heimild til að dvelja hér á landi. Áhersla okkar við vinnslu málsins í allsherjar- og menntamálanefnd hefur verið að komi til þess að börn fylgi foreldrum sínum í brottfararstöð (Forseti hringir.) hafi það sem allra minnst áhrif á þau. Mörgum kann að þykja þetta léttvægt að segja en það þurfa að vera til úrræði sem klárlega eru lokaúrræði þegar önnur og vægari úrræði hafa ekki dugað til að fólk yfirgefi landið eftir ákvörðun yfirvalda þar að lútandi.