157. löggjafarþing — 113. fundur,  1. júní 2026.

brottfararstöð.

230. mál
[15:45]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég tek upp þráðinn þar sem frá var horfið hér áðan þar sem fámennur hópur fólks tók ákvörðun um að raska starfsfriði þingsins, sem er miður, að hér sé ekki hægt að treysta því að menn hegði sér sómasamlega á þingpöllum. En þannig er það. Ég býst nú við því að þarna í þessum hópi, sem talar nú, já, ef maður skilur áferðina rétt, fyrir opnum landamærum, sé fólk sem hefur á einhvern hátt líklega tekið við afbakaðri mynd af efni þessa frumvarps eða a.m.k. misskilið algerlega áhrif frumvarpsins sem leiða til þess t.d. í tilfelli vistunar barna, sem er mjög hvimleið ráðstöfun í þessum tilvikum — að misskilja og líta svo á að það sé á einhvern hátt, eins og gert er ráð fyrir í þessu frumvarpi, verra að hafa fjölskyldur saman í sérstökum úrræðum fjarri öðrum vistmönnum frekar en að fangelsa foreldrana og senda börn í fóstur, eins og hin leiðin virðist vera. Þannig að maður furðar sig mjög á miklum misskilningi (Forseti hringir.) í sambandi við þetta frumvarp. Ég nota kannski fyrsta andsvar mitt til að spyrja hv. framsögumann málsins út í þennan misskilning með að þetta vegi á einhvern hátt gróflega að réttindum barna (Forseti hringir.) ólíkt því sem verið hefur, ef hv. þingmaður getur varpað ljósi á það.