157. löggjafarþing — 114. fundur,  2. júní 2026.

Störf þingsins.

[10:34]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Frú forseti. Já, það er sannarlega ástæða til að taka undir með fyrri ræðumanni um að örmyntin okkar, íslenska krónan, sem okkur mörgum hverjum þykir vænt um, er okkur fjötur um fót hvað sem öðru líður í því samkeppnishæfa umhverfi sem við viljum skapa hér á Íslandi. Okkur gengur vel á Íslandi. Við megum vera stolt af því að vera Íslendingar, það höfum við verið þrátt fyrir krónuna, ekki vegna hennar. Ég veit það, ég ætla bara að leyfa mér að fullyrða það, að ef Evrópuandstæðingar fengju hér kost á að taka upp evru tvíhliða með stuðningi Evrópska seðlabankans þá væri fátt um svör vegna þess að ekki myndu þeir geta sagt já auðvitað, eins og við vitum að þeir myndu gera.

Forseti. Þessi ríkisstjórn á skýrt erindi þrátt fyrir það verkefni sem við stöndum frammi fyrir í haust, sem ég vona svo sannarlega að leiði af sér samningaviðræður þar sem verður barist fyrir hagsmunum Íslands og gerðar ýtrustu kröfur. Hér ætlum við að stefna að hallalausum fjárlögum. Hér erum við, hvað sem öðru líður, að sjá verðbólgu fara lítillega niður. Hér er fjármögnuð samgönguáætlun til umræðu. Hér er stefnt að viðhaldi vega og unnið á innviðaskuld sem byggst hefur upp í boði fyrri ríkisstjórna sem buðu okkur engan hagvöxt á mann síðustu tíu ár. Við ætlum að vaxa, við ætlum að stækka og vera ábyrg. Það verður ekki verkefni sem hættir hvað sem öðru líður. En mikið ótrúlega yrði þetta verkefni til vaxtar auðveldara ef við losnuðum undan fjötrum örmyntarinnar.