Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Vextir, verðbólga og kaupmáttur launa — að mínu mati eru þessir þrír þættir þeir mikilvægu til að mæla stöðu hagkerfisins. Það að kaupmáttur launa aukist jafnt og þétt skiptir launafólk öllu máli. Það er yfirleitt meginstef samningsaðila þegar kjarasamningar eru gerðir en er að sjálfsögðu háð því að verðmætum sé almennt skipt á sanngjarnan hátt. Í umhverfi þar sem óstöðugleiki hefur jafnan verið raunveruleikinn gefur það augaleið að nauðsynlegt er að gera ráð fyrir meiri frávikum til þess að hafa borð fyrir báru. Innan Evrópusambandsins eru samningamódelin afar misjöfn. Í mörgum löndum hafa ekki verið í gildi lágmarkslaun, sérstaklega í suður- og austurhluta Evrópu, þó að mögulega sé það breytt í dag. Á norðlægum slóðum hafa verið við lýði mjög þróuð samningalíkön þar sem aðilar vinnumarkaðarins hafa sammælst um með hvaða hætti kjarasamningar tryggi örugg lágmarkslaun sem halda verðgildi sínu þrátt fyrir verðbólgu. Mörg þessara landa eru í Evrópusambandinu og má þar nefna Danmörku og Svíþjóð. Aðilar vinnumarkaðarins í Danmörku sömdu sín á milli um það með hvaða hætti kjarasamningar skuli gerðir; að kaupmáttur launa aukist jafnt og þétt á sama tíma og verðlag helst stöðugt. Þar skipta þrír þættir mestu máli að mínu mati. Fyrst er það að gjaldmiðill þjóðarinnar sé stöðugur sem er ávísun á stöðug verðmæti. Næst er að svigrúm til launahækkana taki mið af þeirri verðmætasköpun sem þjóðin skapar á hverjum tíma og þar er horft á verðmæti útflutnings. Að lokum að samspil ríkis í formi stuðningskerfis haldist stöðugt þannig að félagslegur rekstur hins opinbera styðji jafnt og þétt við fólk, það sem kallast í daglegu tali norrænt velferðarsamfélag. Það er því til mikils unnið með stöðugum og traustum gjaldmiðli til lengri tíma og það eru mikil sóknarfæri fyrir okkur sem þjóð með aðild að Evrópusambandinu.