157. löggjafarþing — 114. fundur,  2. júní 2026.

Störf þingsins.

[10:38]
Horfa

Rúnar Sigurjónsson (Flf):

Virðulegur forseti. Þann 20. maí síðastliðinn hækkaði seðlabankastjóri meginvexti sína, sem í daglegu tali eru kallaðir stýrivextir, um 0,25 prósentustig. Í aðdraganda þessarar hækkunar hljómaði sami kór greiningardeilda og í aðdraganda breytinga á vöxtum á undanförnum misserum. Fulltrúar greiningardeilda bankanna koma í drottningarviðtöl í sjónvarpsfréttum og spá fyrir um hvað Seðlabankinn muni gera á vaxtaákvörðunardegi. Þeir færa fyrir því ýmis rök og það ótrúlega gerist næstum undantekningarlaust að nokkrum dögum síðar er vöxtum breytt í samræmi við spár greiningardeilda bankanna.

Virðulegur forseti. Það sætir einstakri furðu hversu vel unnar þessar greiningar eru og hversu sannspáir hagfræðingar bankanna eru og færir í því að sjá fyrir það sem koma skal. Eða er hér eitthvað annað og undarlegra á ferðinni? Þetta hljómar eins og óskalög bankanna þó svo að ég voni að þannig sé ekki í pottinn búið. Það mætti alla vega fara yfir þessi mál og taka saman einhverja tölfræði um það hversu oft Seðlabankinn hefur á undanförnum árum gert nákvæmlega eða því sem næst það sem greiningardeildir bankanna hafa spáð. Ég spyr því, virðulegur forseti: Hver ætlar að verða fyrstur til þess að rannsaka þetta og birta okkur skýrslu um hversu oft peningastefnunefnd Seðlabankans hefur gert nákvæmlega það sem greiningardeildir bankanna hafa spáð? Er óhreint mjöl í pokahorninu sem einhver þyrfti að svara fyrir eða eru hagfræðingar bankanna einfaldlega svona ótrúlega sannspáir og fróðir? Væri mögulega hægt að fá þetta fólk til að spá fyrir um lottótölur vikunnar með sömu vissu? Ég vil þó taka það fram að ég er ekki að saka neinn um óheiðarleika. Það er samt mjög undarlegt hversu oft það er nákvæmur samhljómur með þessum fjölmiðlaspám greiningardeildanna og ákvörðunum peningastefnunefndar Seðlabankans.