157. löggjafarþing — 114. fundur,  2. júní 2026.

Störf þingsins.

[10:44]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Fyrst örstutt vegna orða sem fallið hafa hér undir þessum lið, störfum þingsins, um meint ágæti evrunnar, þá er rétt að benda á það að undanfarin ár hefur íslenska krónan verið stöðugri en evran.

Annars langar mig að nefna, frú forseti, að fyrir síðustu kosningar var enginn að ræða ESB nema tilneyddur, (Gripið fram í.)enginn að ræða Evrópusambandsaðild nema tilneyddur. Miðflokkurinn setti málið á dagskrá sem afar skýra andstöðu við inngöngu í ESB. Fyrir vikið þurftu allir meira og minna að svara fyrir sína afstöðu. Þar var enginn tilbúinn að segja: Já, ég vil ganga í Evrópusambandið — nema kannski mögulega tveir flokkar og þeir gáfu sér ákveðnar forsendur sem voru að ná hér niður verðbólgu, vöxtum o.s.frv. Enginn vildi ganga inn í því umhverfi sem við erum í núna og á þeim forsendum sem við erum í núna. Þannig að svikin, frú forseti, eru augljós. Og eitt í viðbót um það, það má þýða yfir á svona slangur; það var enginn að biðja um þetta.

Þjóðin er hins vegar með skýra bón núna, en hver er að hlusta? 42.000 einstaklingar, rétt tæplega, hafa skilað hæstv. fjármálaráðherra þjóðarinnar, Daða Má Kristóferssyni, undirskrift sinni með áskorun um að breyta kílómetragjaldinu. Þar eru gefnar hinar ýmsu forsendur fyrir því hvers vegna það þurfi að gera. Allar þær forsendur, frú forseti, hver og ein einasta, komu fram í þessu ræðupúlti hér áður en þetta kerfi var innleitt. Hæstv. fjármálaráðherra var líklega sá eini af hæstv. ráðherraliðinu sem kom í pontu og fullyrti að þetta væri tilbúið þegar ég var að spyrja út í málið, kerfið myndi ekkert hnökra, þetta væru bara einföld aflestrarkerfi í tölvunni. Allt hefur gengið eftir og nú eru 42.000 Íslendingar að biðja ykkur hér í þessum sal um hjálp, því það er allt í tómu tjóni í þessum málaflokki.