157. löggjafarþing — 114. fundur,  2. júní 2026.

Störf þingsins.

[10:47]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Aðeins um samgönguáætlun og varaflugvallargjaldið: Í gær birtist á vef þingsins nefndarálit meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar um tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026–2030. Nýja varaflugvallargjaldið, sem var sett á 1. nóvember 2023, fyrir þremur árum, snýst fyrst og fremst um flugöryggi. Það snýst um uppbyggingu á Akureyrarflugvelli, Egilsstaðaflugvelli og Reykjavíkurflugvelli; að þessir flugvellir hafi þann styrk að þeir geti sinnt hlutverki sínu sem varaflugvellir. Hér er um risastórt flugöryggismál að ræða. Það snýst um að í landinu séu til öflugir alþjóðaflugvellir sem geta sinnt varaflugvallarhlutverkinu hver fyrir annan.

Þegar gamla varaflugvallargjaldið var afnumið í maí 2011 hrundi mikilvæg fjármögnun til uppbyggingar flugvallakerfisins. Afleiðingarnar sjást enn í dag. Framkvæmdir sem hefðu átt að vera komnar lengra hafa tafist og mikilvægar úrbætur á Akureyrarflugvelli, Egilsstaðaflugvelli og Reykjavíkurflugvelli hafa setið á hakanum. Nýja varaflugvallargjaldið, sem var tekið í notkun fyrir þremur árum, á að leiðrétta þetta. Það á að tryggja markvissa fjármögnun til þeirra flugvalla sem gegna lykilhlutverki sem varaflugvellir fyrir Keflavíkurflugvöll og sem öryggisinnviðir fyrir allt landið. Þess vegna þarf að standa vörð um varaflugvallargjaldið og tryggja að fjármunir fari raunverulega í þau verkefni sem gjaldið var stofnað til að fjármagna. Það þarf skýra forgangsröðun, hraðar framkvæmdir og pólitíska staðfestu. Það er ljóst að það er vöntun á pólitískri staðfestu í málefnum flugvallakerfisins. Mikil afturför er boðuð í þessari samgönguáætlun þar sem þeirri leið sem unnið hefur verið eftir á síðastliðnum árum er ekki fylgt eftir.

Mig langar hér í lokin, virðulegi forseti, að vitna í nefndarálit meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar:

„Til þeirra eru nýttir fjármunir sem innheimtir eru með varaflugvallargjöldum. Það vekur spurningar út frá lögum um uppbyggingu og rekstur flugvalla og þjónustu við flugumferð, nr. 65/2023, sem kveða á um að innheimta skuli varaflugvallargjald til að standa straum af uppbyggingu varaflugvalla.“

Forseti. Það er ljóst að um afturför er að ræða í viðhaldi og uppbyggingu flugvalla landsins, mikla afturför.