157. löggjafarþing — 114. fundur,  2. júní 2026.

Störf þingsins.

[10:49]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Hæstv. utanríkisráðherra skrifaði grein í Morgunblaðið í morgun þar sem hún lofaði íslenskum fjölskyldum hundruðum milljarða króna lægri vöxtum og lægra verðlagi. En hún segir svo í næstu setningu að það séu engar töfralausnir að taka upp evru eða ganga í Evrópusambandið.

Virðulegur forseti. Þetta er upplýsingaóreiða á hæsta stigi. Þetta er popúlismi á hæsta stigi. En staðreyndirnar tala alltaf sínu máli. Og þrátt fyrir upplýsingaóreiðu Viðreisnar þá er ágætt að tala hér öðru hvoru um staðreyndir. Staðreyndin er sú að íslenska krónan hefur sveiflast minna en evran síðastliðin sex ár. Það er staðreynd að lágir vextir og verðbólga ráðast af styrkri efnahagsstjórn landsins, það er staðreynd. Og nú bunkast hér upp hv. þingmenn Samfylkingarinnar og tala niður krónuna en staðreyndin er sú að þau eru að verja hæstv. forsætisráðherra sem hefur gefist upp á verkefninu, hefur klúðrað efnahagsmálum landsins, skattlagt þjóðina út yfir gröf og dauða.

Virðulegur forseti. Evrópusambandsleiðangur ríkisstjórnarinnar er ekki leiðangur fyrir þjóðina til betra lífs. Þetta er uppgjöf gjaldþrota ríkisstjórnar.