Störf þingsins.
Frú forseti. Í gær ræddum við hér á Alþingi frumvarp hæstv. dómsmálaráðherra um brottfararstöð og nefndarálit meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar og svo nefndarálit 1. og 2. minni hluta nefndarinnar. Ég er framsögumaður nefndarálits meiri hluta hv. allsherjar- og menntamálanefndar en frumvarpið hefur verið til meðferðar í nefndinni frá 11. nóvember þegar 1. umræðu um málið lauk hér í þingsal. Mikil vinna er að baki í meðförum hv. allsherjar- og menntamálanefndar á þessu frumvarpi. Málið var til umræðu á 15 fundum nefndarinnar þar sem í flestum tilvikum var tekið á móti gestum sem sent höfðu nefndinni umsagnir en innsend erindi og umsagnir eru 35 talsins. Samvinna í hv. allsherjar- og menntamálanefnd var með ágætum og ég hygg að allir hv. þingmenn sem þar eiga sæti hafi fundið til ábyrgðar að fara vel og nákvæmlega yfir frumvarpið og vera tilbúin til að breyta ákvæðum þess ef það mætti verða til þess að gera málið betra.
Forseti. Það er ekki síst þess vegna sem þingmenn í hv. allsherjar- og menntamálanefnd ákváðu að kynna sér starfsemi brottfararstöðva í Hollandi í fræðsluferð nefndarinnar í janúar síðastliðnum. Ég leyfi mér að fullyrða hér að þó að við stöndum frammi fyrir þeirri áskorun að finna leið til að fullnægja þeim kröfum sem til okkar eru gerðar vegna þátttöku okkar í Schengen-samstarfinu og til að eiga lokaúrræði ef flytja þarf úr landi fólk sem hefur fengið lúkningu sinna mála og hefur verið gert að yfirgefa landið, þá viljum við gera það með sóma og með mannúð að leiðarljósi. Við viljum hafa gegnsæjar reglur og að eftir þeim verði farið.
Forseti. Það er ekki að biðjast afsökunar á sér eða vinnu sinni þó að það sé dregið fram í umræðunni að það hafi verið viðkvæmt og erfitt verkefni að finna niðurstöðu í þessu máli, einkum varðandi þau atriði sem lúta að börnum. Við skulum hafa í huga að sjaldan hafa börn eitthvað um það að segja hvar þau eru stödd í heiminum. Þau fylgja foreldrum sínum sem á stundum beita þeim jafnvel fyrir sig í von um að fá betri niðurstöðu í sín mál en ella. Við þær aðstæður þarf að vera til viðeigandi úrræði.
Frú forseti. Ég mun hér eftir sem hingað til leggja mig fram um að ná niðurstöðu í mál þannig að þau verði sem allra minnst íþyngjandi, einkum fyrir börn. Ég biðst ekki afsökunar á því.