Störf þingsins.
Frú forseti. Nú fer að líða að lokum þingsetu minnar þennan veturinn. Ég vil nota tækifærið og koma hér upp í pontu og segja að það hefur verið mér sannur heiður að taka hér sæti og taka þátt í því, með ágætum kollegum mínum í öllum þeim flokkum sem eiga sæti hér á Alþingi, og gegna því hlutverki að setja samfélagi okkar leikreglur.
Ég vil líka nota tækifærið við þetta tilefni til að reyna að draga fram þann lærdóm sem ég hef dregið af þessu; einhvers konar varúðarorð til þeirra sem munu halda áfram störfum hér á hinu háa Alþingi. Það er þá einna helst að framkvæmdarvaldið er mjög ráðandi þegar kemur að allri lagasetningu, raunar meira en mig grunaði þegar ég tók hér sæti. Frumvörpin eru samin í ráðuneytinu. Viðbrögð fastanefnda við gestakomum og umsögnum aðila ráðast að miklu leyti af minnisblöðum ráðuneytisins þar sem oft og tíðum eru hreinlega lagðar fram efnislegar tillögur um hvernig fastanefndirnar eigi að bregðast við. Svo eru það þessar víðtæku reglugerðarheimildir sem við erum að lögfesta hér dag hvern, þar sem Alþingi Íslendinga er að framselja vald sitt til framkvæmdarvaldsins í ríkara mæli en ég tel rétt að gera. Það er einmitt stjórnskipuleg skylda Alþingis að meta hvort lagasetning hafi áhrif á réttindi borgaranna og rúmist innan þeirra marka sem stjórnarskráin setur. Ég vil nota þetta tækifæri til að brýna ykkur, mína ágætu kollega sem ég hef átt gott samstarf við hér á þingi, til að gæta sjálfstæðis þingsins og hafa það í huga að með lögum skal land byggja en með ólögum eyða. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )