157. löggjafarþing — 114. fundur,  2. júní 2026.

Störf þingsins.

[10:56]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Þingið hefur heldur betur tekið við sér undanfarna klukkutíma. Auk sveitarstjórnarkosninga hefur umræða um ESB-vegferð ríkisstjórnarinnar gegnsýrt öll þingstörf. Þingmenn hlaupa nú í kappi við starfsáætlun með langa verkefnalista sem við vitum að verður ekki allur kláraður. Þeir Íslendingar sem vonast til þess að meiri hlutinn setji efnahagsástandið á oddinn ættu ekki að halda niðri í sér andanum. Einn hópur í samfélaginu hefur þó örugglega ekki verið með sveitarstjórnarkosningar, verðbólgu eða ESB-aðild Íslands efst í huga. Það eru fjölskyldur barna með einhverfu og með fjölþættan vanda sem rekast alls staðar á veggi í íslensku samfélagi. Börnin og fjölskyldur þeirra eru föst á biðlistum mánuðum og árum saman eftir greiningu, meðferð og stuðningi sem við erum samt búin að marglofa þeim.

Mér var að berast svar hér í þinginu við fyrirspurn um langtímaeftirlit hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð. Ég sendi þá fyrirspurn vegna fjölskyldna sem hafa leitað til okkar þingmanna og manni fallast hendur við að lesa svarið. Það virðist þurfa háskólapróf og starfsreynslu til að reyna að skilja svarið og þetta umhverfi. Það veit ég líka eftir að hafa fylgt eftir vinum sem eiga barn á einhverfurófi og með langvinn veikindi og baráttu þeirra við kerfið. En það sem maður þó skilur er að kerfið er flókið og þungt í vöfum. Það minnir helst á flugvelli sem eru hannaðir til að fólk fatti ekki hvað það bíður lengi meðan það ferðast milli hólfa eða á slönguspil þar sem eitt eyðublað sem gleymist eða box sem ekki var tikkað í getur verið slönguhali beint aftur á byrjunarreit.

Staðan er óásættanleg fyrir þessar fjölskyldur. Við verðum að finna þessum börnum stað í okkar samfélagi. Sá staður er ekki biðlistar. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )