157. löggjafarþing — 114. fundur,  2. júní 2026.

Störf þingsins.

[10:59]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Við tókum atkvæðagreiðslu um vegferð ríkisstjórnarinnar í ESB-málinu á fimmtudaginn og á föstudaginn kom skýrsla frá ríkisstjórninni, evruskýrslan. Fjallið tók jóðsótt og úr varð lítil mús. Ríkisstjórnin ákvað hverjir skrifuðu hana, á hvaða forsendum, réðu öllu í málinu. Ríkisstjórnin er búin að koma með allra handa rök sem ekki standast fyrir því að við ættum að verða aðilar að ESB. Munið þið eftir varnarmálunum? Þeir byrjuðu á því, gleymdu því að Finnar og Svíar, sem eru í ESB, gengu í NATO til þess að tryggja sínar varnir. Þeir lofuðu því að allra handa fyrirtæki kæmu til landsins ef við gengjum inn í ESB, gleymdu því að við fengum þá möguleika með EES-samningnum.

Virðulegi forseti. EES-samningurinn er nefnilega hér undir, þessi mikilvægi samningur sem hefur alltaf verið mikilvægur fyrir okkur Íslendinga en aldrei eins og nú. Nú liggur það fyrir að forystumenn annarra EFTA-ríkja hafa sagt að það sé hætta á ferðum ef við segjum já í þessari atkvæðagreiðslu. Við vitum það að þessi vegferð, ef menn segja já 29. ágúst, mun veikja EES-samninginn. Það er nefnilega þannig að EES-samningurinn skiptir máli (Forseti hringir.) og hann mun ekki standa okkur aftur til boða. Það er enn (Forseti hringir.) ein ástæðan fyrir því að það er óásættanleg áhætta að segja já (Forseti hringir.) að EES-samningurinn er undir. En þessi ríkisstjórn vill að Ísland gangi úr EES.

(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á að tímamörkin eru tvær mínútur í þessum dagskrárlið.)