157. löggjafarþing — 114. fundur,  2. júní 2026.

Störf þingsins.

[11:01]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Mig langar að ræða hér í störfum þingsins áhugavert skólastarf sem kallast Kveikjum neistann. Eftir fyrstu þrjú árin af því verkefni, Kveikjum neistann, má segja að markmið þess hafi náðst. Frá upphafi var lögð áhersla á þrjá lykilþætti; að bæta líðan nemenda, efla námsárangur og styrkja áhugahvöt. Niðurstöðurnar sýna að árangur hefur náðst á öllum þessum sviðum og þær hafa m.a. verið birtar í ritrýndum vísindagreinum, með leyfi frú forseta, í Frontiers in Education, Brain Sciences auk umfjöllunar í norska vísindamiðlinum Gemini.no. Rannsóknir sýna að börnunum í verkefninu líður betur í skólanum og þeim líkar betur við bekkjarfélaga sína en börnum í samanburðarhópi. Við teljum að breytt skipulag skóladagsins hafi haft þar veruleg áhrif. Árangur í lestri hefur verið mjög góður. Eftir fyrsta árið höfðu öll börn brotið lestrarkóðann samanborið við 73% í samanburðarhópi. Eftir 2. bekk gátu 83% lesið og skilið texta en 52% í samanburðarhópi og eftir 3. bekk var hlutfallið komið í 91–93% samanborið við 64% í samanburðarhópi. Í stærðfræði sýna niðurstöður Vörðu sterkar og góðar niðurstöður, meðalskor á bilinu 73–86% eftir fyrstu þrjú skólaárin. Áhugahvöt er markvisst ræktuð frá fyrsta skóladegi með áherslu á hugtök á borð við gróskuhugarfar, ástríðu, hugrekki, virðingu og samkennd. Auk þess gegna hreyfing og svokallaðir ástríðutímar lykilhlutverki en þeir eru sá þáttur skólastarfsins sem yngstu nemendurnir meta mest. Niðurstöður benda því til að þegar skólastarf byggir á bestu þekkingu, rannsóknum og markvissri framkvæmd sé hægt að bæta líðan, námsárangur og áhugahvöt barna verulega.