157. löggjafarþing — 114. fundur,  2. júní 2026.

Störf þingsins.

[11:04]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Um helgina sótti ég vorfund NATO-þingsins í Vilníus í Litáen ásamt tveimur öðrum þingmönnum Íslandsdeildar NATO-þingsins. Umræðan hefur breyst gríðarlega mikið síðastliðin átta ár í NATO-þinginu. Norðurslóðir koma sífellt sterkar inn í alla umræðu og voru mjög áberandi í allri umræðu á NATO-þinginu um helgina. Það sem hefur hins vegar yfirtekið alla umræðu á NATO-þinginu eru drónar, árásadrónar og varnir gegn drónum. Það kom fram á þinginu að 80–90% af mannfalli í Úkraínu í dag er til komið vegna dróna. Það hefur orðið gjörbreyting. Hins vegar voru kannski merkilegustu tíðindin fyrir íslenskan þingheim það sem kom fram í máli bandarísku þingmannanna sem sóttu NATO-þingið um helgina, hversu einarður stuðningur þeirra er við NATO. Þeir lögðu gríðarlega áherslu á að Evrópa yrði að fara að skilja það að í Bandaríkjunum og bandaríska þinginu er einhugur um NATO, öflugasta varnarbandalag sem hefur verið stofnað til. Á þessum nótum töluðu þeir og að það væri gríðarlega mikilvægt fyrir Bandaríkin að öflugt NATO yrði áfram til staðar. Þessu þurfum við að gæta að í umræðu á Íslandi þegar við ræðum málefni varnar- og öryggismála, hversu einarður þessi stuðningur er í Bandaríkjunum. Það voru kannski lykilskilaboðin á þessum fundi, þ.e. þessi einarða afstaða og þá erum við að tala bæði um demókrata og repúblikana. Ég vildi rétt koma þessu til skila inn í íslenska pólitíska umræðu um þessi Evrópumál, hversu mikið þetta er í allri umræðu og að vita af þessum gríðarlega mikla og öfluga stuðningi bandarískra þingmanna við NATO.