157. löggjafarþing — 114. fundur,  2. júní 2026.

Stjórn fiskveiða.

[14:01]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir að fallast á þessa umræðu um sjávarútvegsmál en nú í júní er liðin hálf öld frá því að Íslendingar náðu fullum yfirráðum yfir efnahagslögsögunni og erlend fiskiskip sigldu út fyrir 200 mílurnar. Það er því tilefni til að fara yfir hvað þessi sigur hefur fært landsmönnum.

Á þessu ári er leyfilegur heildarafli á þorski rétt rúmlega 200.000 tonn. Við lok þorskastríðanna árið 1976 var heildarveiðin hins vegar 70% meiri eða 350.000 tonn. Af þessum heildarafla fyrir 50 árum komu 280.000 tonn í hlut Íslendinga, eða 40% meiri þorskafli en við veiðum nú á þessu ári. Fyrir utan gríðarlegan aflasamdrátt frá árinu 1976 og árunum þar í kring og í rauninni alla 20. öldina þá er greinilega mikið minna frelsi og jafnræði fyrir Íslendinga til að draga bein úr sjó en var áður en Íslendingar náðu fullum yfirráðum yfir lögsögunni. Sjávarbyggðir á borð við Grímsey hafa að mestu misst réttinn til að nýta nálæg fiskimið. Nú þegar við stöndum á sögulegum tímamótum ættu þessar staðreyndir að vera tilefni til að fara yfir fiskveiðiráðgjöfina og auka frelsi til veiða og tryggja jafnræði og byggðafestu. Það væri t.d. góður bragur á því á þessum tímamótum að ríkisstjórn valkyrjanna veitti Grímseyingum og íbúum annarra sjávarbyggða skýran rétt til þess að nýta nálægð fiskimið með vistvænum hætti.

Á síðustu árum hefur þorskafli sem berst á land, eins og fyrr var greint frá, verið mikið minni en hann var. Það á ekki aðeins við um þorskinn heldur einnig um flestar nytjategundir. Í svari sem Hafrannsóknastofnun sendi við fyrirspurn um þetta atriði kom fram að þrátt fyrir að hrygningarstofn hafi verið mjög sterkur frá árinu 2016 hafi það ekki skilað sér í aukinni nýliðun eða fjölgun þriggja ára fisks sem er að koma inn í veiðistofninn. Af því tilefni vil ég spyrja hæstv. ráðherra, í ljósi þessara upplýsinga og þess að grunnforsendur veiðiráðgjafarinnar eru ekki að ganga eftir, hvort það sé ekki tilefni til að fara í rækilega endurskoðun á ráðgjöfinni.

Þá hefur komið skýrt fram, frú forseti, að verð á loðnu sem landað er hér á landi til vinnslu hjá tengdum aðilum sé verulega lægra en það sem fæst fyrir sambærilega loðnu í Færeyjum. Jafnframt hefur verið bent á að verð á bolfiski í innri viðskiptum þar sem útgerð og vinnsla eru á sömu hendi sé töluvert lægra en það verð sem fæst fyrir sambærilegan fisk á mörkuðum bæði hér og erlendis. Telur ráðherra ástæðu til að skoða hvort núverandi fyrirkomulag tryggi nægilegt gagnsæi, eðlileg samkeppnisskilyrði fyrir fiskvinnslur sem ekki hafa yfir eigin aflaheimildum að ráða og sömuleiðis hvort sjómenn séu að fá sanngjarna hlutdeild í verðmætasköpuninni? Telur ráðherra koma til greina að láta kanna hvort verðlagning í þessum viðskiptum sé í samræmi við eðlilega viðskiptahætti?

Frú forseti. Komið hefur til umræðu hvort breyta eigi fyrirkomulagi úthlutunar aflaheimilda þannig að ákveðið hlutfall þeirra verði boðið upp árlega, t.d. 5% heildaraflans á hverju ári. Í þessu er rétt að vísa til þess að Landssamband smábátaeigenda hefur lýst yfir áhuga á að leigja aflaheimildir á þorski af ríkinu fyrir 133 kr. kílóið og greiða síðan veiðigjaldið að auki. Telur ráðherra koma til greina að breyta lögum þannig að ákveðið hlutfall aflaheimilda verði boðið upp eða leigt út árlega af hálfu ríkisins? Ljóst er enn fremur að hluti aflaheimilda í tilteknum tegundum, m.a. ufsa og úthafsrækju, er ekki nýttur að fullu og fellur niður ár hvert. Við þær aðstæður vakna spurningar hvort núverandi fyrirkomulag stuðli að hagkvæmri nýtingu auðlindarinnar og hvort svigrúm sé til þess að nýta þessar heimildir betur án þess að ganga gegn markmiðum fiskveiðistjórnarkerfisins. Ég tel það augljóst en það væri áhugavert að heyra hér afstöðu ráðherrans hvað það varðar. Það er augljóst að hin tvöfalda verðlagning sem hefur viðgengist hér árum saman hefur haft sínar afleiðingar. Þær birtast m.a. í nýlegri skýrslu um uppkaup stóru sjávarútvegsrisanna á smærri sjávarútvegsfyrirtækjum og fyrirtækjum í öðrum greinum atvinnulífsins.

Frú forseti. Hér er tilefni til breytinga því að engin vestræn þjóð sættir sig við sambærilegt ástand (Forseti hringir.) og hér ríkir varðandi helstu útflutningsgrein landsmanna, útflutningsgrein sem þar að auki byggir á nýtingu sameiginlegra náttúruauðlinda landsmanna. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)