Stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga málefni sem fiskveiðistjórnarkerfið okkar er og varpa fram mikilvægum krefjandi spurningum þar. Ég tek auðvitað undir að það er áhyggjuefni hversu léleg nýliðun í þorskstofninum hefur verið. Við þekkjum stærð árganga og undanfarið hefur nýliðunin ekki verið góð. Einhver hluti þessara affalla er kominn til vegna sjálfsráns þorsks, þar sem næstum þriggja ára gamall þorskur étur yngri þorsk, en þriggja ára gamall þorskur er hins vegar undir veiðanlegri stærð. Það er í mínum huga afar mikilvægt að efla rannsóknir á lífslíkum þorsks á fyrstu árum hans. Þó að það hafi vissulega verið töluvert rannsakað á liðnum árum þá bendir allt til þess að við þurfum að gefa í þarna og auðvitað er bara full ástæða til að gefa í rannsóknir á botnfiskum almennt í ljósi þeirra breytinga sem eru að verða á hafinu.
En varðandi spurningu hv. þingmanns þá tel ég ekki tilefni til að endurskoða forsendur fiskveiðiráðgjafarinnar. Vísindin eiga hins vegar alltaf að taka mið af bestu mögulegu þekkingu hverju sinni og vísindin eiga að vera í stöðugri endurskoðun. Í því liggur ábyrgð okkar öllum stundum.
Mig langar til að nefna hér að það hefur komið fram beiðni um að ég beiti mér fyrir því að það verði settur á stofn rýnihópur sem hafi það hlutverk að fara yfir og rýna til gagns ráðgjöf Hafró um aflamark í einstökum fisktegundum áður en ráðgjöfin er kynnt opinberlega. Við erum að skoða það núna innan ráðuneytisins. Ég nefni þetta sem dæmi um að það er verið að skoða ákveðna hluti varðandi þessi vísindi. Svo er kannski líka rétt að halda því til haga að íslenski þorskstofninn er sá sem er í bestu ástandi af öllum þorskstofnum í heiminum í dag.
Hvað varðar verðlagningu afla, samkeppnisskilyrði og hlutdeild sjómanna er að mínu mati fyllilega tilefni til að skoða þau mál nánar. Eins og þingmaðurinn þekkir þá samþykktum við fyrir tæpu ári leiðréttingu á veiðigjöldum þar sem viðmið við útreikning á veiðigjaldi var leiðrétt og nú er stuðst við markaðsverð, eins nálægt því og við komumst, og það var stórt og mikilvægt skref. Með breytingunum á veiðigjöldum kom auðvitað í ljós þessi mikli munur sem er á milli markaðsverðs og innri verðlagningar. Við sjáum líka mikinn verðmun á loðnu í Færeyjum og á Íslandi eins og svar atvinnuvegaráðuneytis við fyrirspurn hv. þm. Eydísar Ásbjörnsdóttur leiddi í ljós. Ég hef áður sagt að mér þykir sá munur hreinlega sláandi. Það sýnir einfaldlega að það er viðvarandi verkefni að tryggja að þjóðin fái sanngjarnan hlut af raunverulegu aflaverðmæti og sýnir einnig, eins og ég hélt ítrekað fram í umræðunni um leiðréttingu veiðigjalda, að það er illmögulegt að ná fram raunverulegu markaðsvirði í hinu flókna og ógegnsæja kerfi veiðigjalda sem við höfum notað.
Við þessa leiðréttingu fyrir ári síðan tókum við loðnuna út fyrir sviga vegna sérstöðu hennar en vinnum nú að því í ráðuneyti atvinnuvega að tryggja að veiðigjöldin verði sannarlega greidd af raunverulegu markaðsverðmæti loðnu. Þannig að ég tek einfaldlega undir það með hv. þingmanni að þetta vekur spurningar. Við leiðréttum veiðigjöldin einmitt til þess að setja þau nær eðlilegum markaðssjónarmiðum og að þjóðin fengi sanngjarna hlutdeild í auðlindinni okkar.
Mikilvægur liður í því að auka gagnsæi og upplýsingaflæði er frumvarp mitt um stofnun atvinnuveganna. Þar er m.a. með skýrum hætti kveðið á um heimild stofnunarinnar til að afla nauðsynlegra upplýsinga um útflutning á sjávarafurðum hjá tollyfirvöldum með stafrænum hætti. Ég tel þetta mikilvægan lið í því að auka gegnsæi hvað varðar verðlagningu.
Markmið stjórnvalda á sviði sjávarútvegs eru að atvinnugreinin standi í fremstu röð, sé áfram samkeppnishæf á alþjóðavettvangi og skapi þannig verðmæti fyrir þjóðarbúið. Sem atvinnuvegaráðherra tek ég auðvitað alvarlega þessa umræðu um fyrirkomulag úthlutunar aflaheimilda og ég tel eðlilegt að við skoðum hvaða leiðir eru færar til að efla gegnsæi, verðmætasköpun og jafnræði í greininni.
Mín skoðun og stefna okkar í Viðreisn er að ákveðinn hluti kvótans verði settur árlega á markað og boðinn út. Markmiðið með því er að auka fyrirsjáanleika í greininni, tryggja að við vitum hvert markaðsverðið er og staðfesta eignarhald þjóðarinnar á auðlindinni. Af þessum sökum kemur vel til álita að kanna nánar hvort og með hvaða hætti megi breyta lögum þannig að hluti aflaheimilda verði boðinn upp eða leigður út árlega en slík ákvörðun yrði að byggjast á heildstæðu mati og samráði áður en til breytinga kæmi.
Varðandi síðustu spurninguna, hvort til greina komi að rýmka heimildir til veiða á tegundum þar sem aflaheimildir eru ekki nýttar, tel ég rétt að skoða hvort betur megi nýta slíkar vannýttar heimildir en þær verða að byggjast á vísindalegri ráðgjöf og heildstæðu mati á áhrifum á sjálfbæra nýtingu og markmiðum fiskveiðistjórnarkerfisins. Ég tek undir með hv. þingmanni að þarna geta verið tækifæri til betri nýtingar og ég er með það í skoðun innan ráðuneytisins hvernig við nálgumst það mál og nýtum okkur þau tækifæri.