157. löggjafarþing — 114. fundur,  2. júní 2026.

Stjórn fiskveiða.

[14:12]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu. Það er í sjálfu sér alltaf ástæða til að ræða hér íslenskt fiskveiðistjórnarkerfi og íslenskan sjávarútveg. Slíkir eru hagsmunir þjóðarinnar af þessari mikilvægu atvinnugrein. Það sem stendur auðvitað upp úr hér eftir framsöguræðu hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar og svör hæstv. ráðherra við hans ræðu er auðvitað sá stóri ágreiningur sem er innan stjórnarflokkanna um það hversu langt eigi að ganga í að fara að endurskoða fiskveiðistjórnarkerfið. Flokkur fólksins, með Sigurjón í forystu, hefur farið um landið og boðað miklar breytingar og lofað mönnum stórum hlutum. En ráðherrann áréttar hér, sem ég fagna, að það sé ekki ástæða til að endurskoða ráðgjöfina. Það sé ástæða til að hafa opinn debatt, það sé ástæða til að skoða hlutina og ræða þá, en einmitt að nálgast þetta á þeim vísindalega grunni sem við höfum byggt okkar fiskveiðistjórnarkerfi á.

Það verður ekki horft fram hjá því að íslenska fiskveiðistjórnarkerfið, sem eflaust má að einhverju leyti bæta, hefur unnið sér þann sess meðal þjóða að skila einhverjum besta árangri sem þekkist. Margir horfa til okkar öfundaraugum af því hvernig við höldum utan um þessi mál. Við erum nánast eina þjóðin meðal OECD-landa þar sem sjávarútvegurinn nýtur ekki ríkisstyrks í einhverju magni heldur rífumst við um það hversu mikið við getum viðbótarskattlagt greina. Það þarf auðvitað að ganga varlega þar um og ég tek undir það sem ráðherrann sagði hér áðan, að við yrðum alltaf að hafa í forgrunni að tryggja samkeppnishæfni greinarinnar. Það að endurskoða eða leiðrétta uppgjörsmál milli sjómanna og útgerða, hvernig gert er upp á Íslandi, er auðvitað eitthvað sem er sjálfsagt að skoða. En verum þá minnug þess að sjómenn og útgerðarmenn hafa nýlega gert tíu ára kjarasamning þar sem báðir stóðu sáttir upp frá borði. Í tíu ár — það er fordæmalaust (Forseti hringir.) í íslenskri sögu að svona kjarasamningar séu gerðir. Það er grunnurinn að stöðugleika og fyrirsjáanleika fyrir bæði vinnuveitendur og sjómenn í þessu tilfelli.