157. löggjafarþing — 114. fundur,  2. júní 2026.

Stjórn fiskveiða.

[14:14]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni og hæstv. ráðherra fyrir að koma til þessarar umræðu. Ég verð að viðurkenna að mér brá dálítið í hliðarsal að heyra að hér sé uppvakningur mættur á svæðið, fyrningarleiðin svokallaða, sem ég hélt að allir væru hættir að hugsa um bara á grundvelli þess hversu galin sú nálgun væri hvað meðferð á okkar mikilvægustu auðlind varðar. En nú flýtur upp hugmynd hér um hvort ekki kæmi til greina að skoða uppboð á eins og 5% árlega af útgefnum aflaheimildum. Nógu slæmt þótti mér að fyrrverandi formaður atvinnuveganefndar tæki þessa hugmynd hér upp við þessa umræðu en enn verra var að mér þótti hæstv. ráðherra bara taka því ágætlega að taka þetta til skoðunar í mati á mögulegri endurskoðun fiskveiðistjórnarkerfisins. Við megum ekki gleyma því hversu vel okkur hefur tekist til í raun hvað það varðar að skapa sem mest verðmæti fyrir samfélagið úr þessari auðlind okkar. Það gerðist ekki af sjálfu sér og ég bara vona að við umgöngumst það ekki af einhverri léttúð að passa upp á að samkeppnishæfni og rekstrarskilyrði þeirra fyrirtækja sem stunda þennan atvinnurekstur séu forsvaranleg. Það þýðir auðvitað að það sé fyrirsjáanleiki. Það er enginn fyrirsjáanleiki í því ef annars vegar hæstv. ráðherra málaflokksins og hins vegar sá þingmaður, sem hefur haft sig mest í frammi varðandi gagnrýni á fiskveiðistjórnarkerfið eins og það er í dag og hefur verið mæta í þingsal, bara yppta öxlum og segja: Það væri bara spennandi að skoða þessa fyrningarleið aftur, sem allir héldu að væri dauð sem hugmynd.