Stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Ég byrja á því að þakka málshefjanda, hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni, fyrir að hefja þessa umræðu hér og þakka sömuleiðis hæstv. atvinnuvegaráðherra fyrir sína þátttöku í umræðunni. Hv. þingmaður leggur fyrir fjórar spurningar sem leiðarvísi inn í þessa umræðu og það er vel. Það er alveg ljóst að það kerfi sem við höfum búið við er hluti af þeim mannanna verkum sem eru í okkar höndum og við sjáum það líka ef við berum okkur saman við aðrar þjóðir að sennilega hefur okkur gengið ágætlega hvað varðar vernd fiskstofna. En ég tek sömuleiðis undir með hv. þingmanni þegar kemur að ráðgjöfinni. Nú vill þannig til að ég og hv. þingmaður erum í sama kjördæmi og við höfum stundum tekið spjallið á ferðum okkar um kjördæmið varðandi það hvernig ráðgjöfin er. Hafandi búið allt mitt líf á Norðurlandi og fylgst með sjávarútvegi þar þá er nærtækasta dæmið að horfa til þeirrar breytingar sem orðið hefur á lífríkinu fyrir norðan land. Það eru ekki mörg ár síðan það var varla hægt að draga bein úr sjó á þessum árstíma, þ.e. fá nýtanlegan þorsk á handfæri, hvað, fyrir 10–15 árum síðan. Nú er boltafiskur fyrir öllu Norðurlandi og það hlýtur að vera einhver ástæða fyrir því. Hver breytingin er veit ég ekki en ég held að það sé mjög mikilvægt í þessu samhengi að við eflum rannsóknir og það er eitt af því sem ég held að við gerum aldrei nægjanlega mikið af. Við verðum að geta fært okkur áfram í því hvernig við ætlum að nýta okkar auðlind og ég mun koma betur inn á það í seinni ræðu.