157. löggjafarþing — 114. fundur,  2. júní 2026.

Stjórn fiskveiða.

[14:26]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir að hefja þessa umræðu. Það er alltaf gott að koma hér upp og ræða um sjávarútvegsmál. Það vill nú þannig til að sá sem hér stendur er jafn gamall stækkun landhelginnar í 200 mílur og á svipuðum tíma kemur svarta skýrsla Hafrannsóknastofnunar. Nokkrum árum seinna er sett á kvótakerfi sem er síðan fest í sessi með frjálsu framsali með lögum 1990 og tekur gildi 1991. Hvað höfum við gert á þessum árum? Jú, við höfum byggt upp kerfi þar sem atvinnugreinin hefur haft möguleika til að hagræða í rekstri til þess að búa til þannig rekstrareiningar að hægt sé að fjárfesta og byggja upp hátæknisjávarútveg, byggja á veiðum og vinnslu, veiðum þar sem byggt er á vísindalegri ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar, vísindamanna. En svo er það bara þannig, virðulegur forseti, að sumum stjórnmálamönnum hugnast ekki vísindi stofnunarinnar og vilja tala fyrir því að menn fari að nota einhver vúdúvísindi til þess að ákveða aflamark, ákveða kvóta. Það mun henta einhverjum til skamms tíma, en þegar verður búið að ganga á allar stofnana — og þó nokkuð margar fiskveiðiþjóðir, virðulegur forseti, hafa nú þegar lent í því að treysta á stjórnmálamenn sem ákváðu kvótana í staðinn fyrir að fara eftir vísindalegri ráðgjöf og nú sitja þessar þjóðir eftir með sárt ennið. Ég trúi því ekki að árið 2026 séum við komin á þann stað, virðulegur forseti, í ráðgjöf um aflamark og annað, að ætla virkilega að fara að ræða það að fara eftir einhverju öðru en vísindalegri ráðgjöf. (Forseti hringir.) Það væri dapur dagur og döpur tíðindi fyrir íslenska þjóð.