Stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Ég ætla aðeins að halda áfram þar sem ég skildi við hér áðan varðandi þessa furðuhugmynd sem kom fram áðan um að endurvekja fyrningardrauginn, fyrningu aflaheimilda og uppboð því tengt. Nú er nýbúið að kjósa í Færeyjum. Þar var enginn stjórnmálaflokkur, enginn frambjóðandi með það á stefnuskrá sinni að fyrna aflaheimildir eða bjóða þær upp, enginn. Og af hverju skyldi það nú vera? Það er af því að Færeyingar læra af reynslunni. Reynslan af slíkri nálgun sem var viðhöfð 2014–2016, ef ég man rétt, var ekki góð. Hún var raunar mjög slæm og Færeyingar lærðu af reynslunni. Þetta dettur engum til hugar í dag. Á sama tíma erum við hér með eitt albesta, ef ekki besta fiskveiðistjórnarkerfi í heimi. Sjávarútvegurinn er sterkur. Nettótekjur ríkissjóðs af rekstrinum falla í 100 milljarða á ári. Þetta er allt að ganga býsna vel. Þá vakna svona hugmyndir aftur og á sama tíma eru sumir þingmenn sem virðast ekki gefa neitt fyrir það að grundvalla fiskveiðiráðgjöf á vísindum og festu í veiðireglu og nálgun allri, það er ekki metið í neinu hjá sumum þingmanna. Þetta er ekki boðlegt gagnvart umræðu um okkar mikilvægustu atvinnugrein sem sjávarútvegurinn er. Ég vildi bara halda því til haga að ég bara vona að hv. þm. Sigurjón Þórðarson sé ekki í raun að reyna að vekja upp fyrningardrauginn. Þetta hafi verið einhver brandari sem var kannski ekki hugsaður alveg til enda. En verra þótti mér að hæstv. ráðherra skyldi ekki kýla drauginn kaldan í fyrstu setningu.
Frú forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu en bara geld varhuga við þeim hugmyndum sem hv. þm. Sigurjón Þórðarson kom fram með í ræðu sinni. Þær eru gegnumgangandi (Forseti hringir.) ekki góðar fyrir íslenska hagsmuni og við eigum að ganga varlega um og tryggja stöðugleika og festu í rekstrarumhverfi sjávarútvegsins (Forseti hringir.) og tryggja það að við séum að hámarka þau verðmæti sem Ísland sem heild nýtur af þeirri auðlind sem er hér hringinn í kringum landið. (Gripið fram í.)
(Forseti (KÁB): Þögn í salnum, vinsamlegast, hv. þingmenn.)