157. löggjafarþing — 114. fundur,  2. júní 2026.

Stjórn fiskveiða.

[14:31]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir að hefja þetta mál til umræðu í dag. Það er ekkert leyndarmál að fiskveiðikerfið á Íslandi hefur verið bitbein áratugum saman. Annars vegar hefur það fyrirkomulag sem við settum upp með tilurð kvótakerfisins, framsali aflaheimilda og heimild til veðsetningar þeirra, stuðlað að hagkvæmari veiðum og mikilli arðsemi fyrir þjóðarbúið. Hins vegar hefur fyrirkomulagið stuðlað að aukinni samþjöppun kvóta og gríðarlegri auðsöfnun á fárra hendur. Um það þarf ekkert að þræta að sú skipting á afkomunni af nýtingu þjóðarauðlindarinnar hefur ekki notið stuðnings yfirgnæfandi hluta þjóðarinnar.

Okkar hlutverk sem stjórnmálamanna hlýtur því að vera að reyna að viðhalda sterkri stöðu sjávarútvegs á sama tíma og óréttlætið sem kvótakerfið í heild leiddi af sér er leiðrétt. Við stigum stór skref í þá átt í fyrrasumar þegar veiðigjöld voru loks leiðrétt. Það var gert með þeim hætti að litlum og meðalstórum útgerðum var hlíft. Nú, um tíu mánuðum eftir að veiðigjöldin voru afgreidd, hefur staða íslensks sjávarútvegs sennilega aldrei verið sterkari. Stærstu útgerðir landsins, sem greiða mest í veiðigjöld, hafa sennilega aldrei staðið betur. Tilkynningar um metafkomu eru birtar með reglulegu millibili og markaðsvirði stærstu útgerðanna hefur aukist um langt á annað hundrað milljarða kr. frá síðasta sumri. Allt þetta sýnir að við þurfum ekki að vera hrædd við að taka djörf en rétt stór skref í breytingu á stjórn fiskveiða og ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur sýnt í verki að hún er óhrædd við að taka slík skref. Við þurfum að standa vörð um störfin og við þurfum að tryggja að raunveruleg aflaverðmæti séu rétt og að af þeim sé greitt.