157. löggjafarþing — 114. fundur,  2. júní 2026.

Stjórn fiskveiða.

[14:33]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Virðulegur forseti. Ég ætla að reyna að halda áfram þar sem frá var horfið í minni fyrri ræðu en áður en ég fer þangað þá held ég að það sé mikilvægt að við höfum það — í ljósi þess sem hv. þm. Kristján Þórður Snæbjarnarson fór hér yfir áðan varðandi metafkomu sjávarútvegsins þá er það svo sem alveg rétt. En við skulum hafa það líka í huga að sú veiðigjaldahækkun sem við samþykktum fyrir ári síðan var ekki komin inn á árinu 2025, hún kemur inn á árinu 2026, svo það sé nú sagt.

En varðandi þann afla sem við drögum að landi í okkar lögsögu úr hinni sameiginlegu auðlind þá er mjög mikilvægt að við höfum það í huga og horfum til þess að við reynum að stórauka það verðmæti sem við drögum að landi og þá komum við að því sem held ég að sé að gerast í æ meira mæli sem snýr að því að við erum að flytja óunninn fisk úr landi til frekari vinnslu. Það held ég að sé áhyggjuefni vegna þess að ég held að það sé sameiginlegt verkefni okkar allra að auka það verðmæti sem dregið er úr sjó, hvernig sem það er gert. Það að við séum að horfa á eftir verðmætum til vinnslu erlendis er ekki jákvætt fyrir íslenskt þjóðarbú. Sumir tala um að setja á vinnsluskyldu. Ég held að við þurfum að horfa og gaumgæfa hvernig við getum nálgast þetta af því að alltaf þegar við setjum einhverjar skorður þá svo sem eru einhverjar hindranir fram undan. En mikilvægt er samt í því ljósi, og ég ítreka það sem ég sagði hérna áðan, að við þurfum að efla rannsóknir enn frekar en við erum í dag og vil minna á að bara sú breyting sem orðið hefur á undanförnum árum hringinn í kringum landið, (Forseti hringir.) sérstaklega nærtækt dæmi fyrir Norðurlandi varðandi fiskigengd og annað, (Forseti hringir.) ýtir nú töluvert undir það að við þurfum að velta því fyrir okkur hvort við séum á réttri leið varðandi þá ráðgjöf sem við erum að vinna eftir.