Stjórn fiskveiða.
Herra forseti. Ég vil nú byrja á því að þakka fyrir þessa umræðu sem hefur farið hérna fram. Hún hefur verið um margt upplýsandi og það var ánægjulegt að heyra hæstv. ráðherra lýsa því yfir að hún hyggist stíga ákveðin skref til að fara betur yfir viðskiptahætti, gagnsæi og tvöföldu verðlagninguna. Ég held að það sé mikilvægt. Það var líka áhugavert að heyra talsmenn Miðflokks og Sjálfstæðisflokks tala um að þetta kerfi hér sé bara eitt það besta í heimi og algerlega gallalaust. Gott ef ekki mátti greina það að þeir vildu bara setja þetta í formalín og ekki breyta einu né neinu, þó svo að gallarnir komi fram í umræðunni í samfélaginu, nánast í hverju þorpi og á hverri kaffistofu hringinn í kringum landið. En þetta er afstaða þeirra.
Hvað varðar veiðiráðgjöfina er ágætt að fara aðeins yfir að þegar lagt var af stað í þessa vegferð og svarta skýrslan kom út var ætlunin ekki að ná 350.000 tonnum, það þótti ekki gott vegna þess að aflinn var að jafnaði oft meiri en það, heldur var ætlunin sú að aflinn yrði hálf milljón tonna og að minnka sveiflurnar. Það átti að gerast með því að stór hrygningarstofn myndi skila mikilli nýliðun. Nú er stofnunin búin að lýsa því yfir að það sé ekki raunin, hann sé ekki að skila mikilli nýliðun. Síðan átti að vernda smáfisk til að hann gæti tekið út vöxtinn og minnka þessar sveiflur. Svo var þetta markmið fært neðar, í 400.000 tonn, sem náðist ekki, og síðan var aflareglunni breytt 2007 og þá átti að setja 350.000 tonna mark sem hefur ekki heldur náðst. Þannig að mér finnst menn standa frammi fyrir þeirri spurningu hér: Er veruleikinn rangur eða eru módelin og ráðgjöfin eitthvað broguð? Ég hallast að því að veruleikinn sé eins og hann er og það þurfi að skoða ráðgjöfina. Hér eru sumir sammála mér og ég fagna því að fulltrúi Framsóknarflokksins opni á það.
Hvað varðar Færeyjar vil ég bara nefna (Forseti hringir.) að þar er miklu gagnsærri verðlagning og meiri sátt og minni þrýstingur þess vegna til breytinga. Þar er reyndar mjög frjó umræða um stjórn fiskveiða og það er líka meiri vilji hjá Færeyingum til að láta samfélagið njóta þess sem hafið gefur.