157. löggjafarþing — 114. fundur,  2. júní 2026.

laun þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna.

632. mál
[19:29]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Ragna Sigurðardóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna, viðmið uppfærslu launa.

Með frumvarpinu er lögð til breyting á varanlegu viðmiði fyrir uppfærslu launa þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna hverra laun eru ákvörðuð með lögum. Í þeim hópi eru forseti Íslands, alþingismenn, ráðherrar, dómarar, saksóknarar, lögreglustjórar, ráðuneytisstjórar, seðlabankastjóri, varaseðlabankastjóri og ríkissáttasemjari.

Í frumvarpinu er lagt til að viðmið við uppfærslu launa hópsins verði hlutfallsleg breyting á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna. Í því sambandi er lagt til að Hagstofa Íslands fái það lögbundna hlutverk að reikna og birta meðaltal reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna sem hagtölur auk hlutfallslegra breytinga á grundvelli þeirra. Til þess að veita stofnuninni svigrúm við innleiðingu á nýjum útreikningum og framkvæmd uppfærslu á grundvelli nýs lögbundins viðmiðs er í frumvarpinu lagt til að innleiðing á nýju varanlegu viðmiði hefjist 1. janúar 2028. Einnig er í frumvarpinu lagt til að fyrirhugaðar hækkanir launa samkvæmt gildandi ákvæðum laga, sem kveða á um árlega breytingu á launum þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna, komi ekki til framkvæmda dagana 1. júlí 2026 og 1. júlí 2027 en þess í stað nemi hækkun launa þá daga 3,5% hlutfalli. Loks er lagt til að uppsöfnuð árleg hlutfallsleg hækkun launa verði ekki meiri en 3,5% dagana 1. apríl 2028 og 1. október 2028.

Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að ætlunin sé að skýra viðmið við uppfærslu launa þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna til samræmis við ætlun löggjafans og þingvilja við setningu laga árið 2019 um launafyrirkomulag í kjölfar brottfalls laga um kjararáð. Með frumvarpinu sé gengið út frá því að eitt verði látið ganga yfir alla þjóðkjörna fulltrúa og æðstu embættismenn hverra laun eru ákveðin með lögum. Lögð sé áhersla á að sama fyrirkomulag gildi um allan hópinn en það sé einn þáttur í því að stuðla að fyrirsjáanleika og stöðugleika við uppfærslu á launum hans. Þá hækka laun hópsins að óbreyttum lögum umtalsvert umfram aðra hópa þann 1. júlí næstkomandi verði ekkert að gert og standi nauðsyn til þess að bregðast við því með þeim hætti að gengið sé fram með góðu fordæmi á tímum mikillar verðbólgu og hárra vaxta.

Meiri hlutinn tekur heils hugar undir þau orð og telur það bæði sanngjarnt og í samræmi við jafnræðissjónarmið að eitt skuli yfir alla ganga þegar viðmiði við uppfærslu launa er slegið föstu. Meiri hlutinn tekur einnig fram að þrátt fyrir að sá hópur þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna sem frumvarpið tekur til sé ekki stór í þjóðhagslegu samhengi þá hefur hópurinn ríkt fordæmisgildi og mikið vægi í opinberri umræðu. Á hópnum hvílir því mikil ábyrgð sem felst í því að ganga á undan með góðu fordæmi til skemmri og lengri tíma, líkt og frumvarpið kveður á um.

Með frumvarpinu er lagt til breytt verklag við uppfærslu launa þar sem hlutverk hverrar stofnunar er lögbundið og skýrt afmarkað. Auk þess er með frumvarpinu lagt upp með að nýtt varanlegt viðmið verði innleitt í skrefum fram til ársins 2028. Í ljósi mikilvægis málsins og þeirra miklu hagsmuna sem frumvarpið tekur til beinir meiri hlutinn því til ráðuneytisins að sérstaklega verði vandað til við undirbúning að nýju verklagi þannig að hlutverk hverrar stofnunar verði skýrt og afmarkað.

Meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar leggur til breytingar á frumvarpinu. Í fyrsta lagi er lögð til breyting er varðar laun forsetaritara í lögum um starfskjör og skrifstofu forseta Íslands. Fjármála- og efnahagsráðuneytið benti á að með lögum um breytingu á lögum um laun forseta Íslands og lögum um Stjórnarráð Íslands var lögum um laun forseta Íslands breytt á þann hátt að laun forsetaritara voru felld undir núgildandi fyrirkomulag um uppfærslu launa þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna. Í ljósi þeirra laga þurfi nú að gera breytingu á lögunum með nýju viðmiði og leggja til nýtt bráðabirgðaákvæði samhljóða þeim ákvæðum sem lögð eru til með frumvarpi þessu.

Meiri hlutinn tekur undir með ráðuneytinu að breytt fyrirkomulag um uppfærslu launa verði einnig látið gilda um uppfærslu launa embættis forsetaritara, enda var gert ráð fyrir að svo yrði í frumvarpi því sem varð að lögum um starfskjör og skrifstofu forseta Íslands, nr. 41/2026. Meiri hlutinn leggur því til breytingartillögu þar að lútandi.

Í öðru lagi er lögð til breyting er varðar uppfærslu launa seðlabankastjóra og varaseðlabankastjóra. Með frumvarpinu er mælt fyrir um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands með nýju viðmiði við uppfærslu launa seðlabankastjóra og varaseðlabankastjóra. Það viðmið sem lagt er til er meðaltal reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna sem Hagstofu Íslands er falið að reikna og birta. Í ákvæðinu er kveðið á um að við launaafgreiðslu uppfæri Fjársýsla ríkisins krónutölufjárhæð launa til samræmis við útreikninga Hagstofu Íslands. Samkvæmt núgildandi ákvæði laga um Seðlabanka Íslands uppfærir Seðlabankinn hins vegar sjálfur krónutölufjárhæðir til samræmis við tölur Hagstofunnar. Meiri hlutinn telur því að með hliðsjón af sjónarmiðum um sjálfstæði Seðlabanka Íslands og til hagræðis fyrir starfsemi bankans sé rétt að bankinn fari áfram með launaafgreiðslu seðlabankastjóra og varaseðlabankastjóra. Meiri hlutinn leggur því til breytingartillögu þar að lútandi.

Vísast að öðru leyti til ítarlegrar umfjöllunar um breytingartillögur í áliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.

Undir álit meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Arna Lára Jónsdóttir, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Pawel Bartoszek og Sigmundur Ernir Rúnarsson.

Frú forseti. Með lögfestingu varanlegs viðmiðs við uppfærslu launa þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna hverra laun eru ákvörðuð með lögum er tekið mið af tillögum starfshóps forsætisráðherra sem skipaður var árið 2025 sem í sátu aðilar vinnumarkaðarins. Náið samráð var jafnframt haft við Hagstofu Íslands sem sinnir útreikningi og birtingu þess viðmiðs sem hér er undir. Vandað var til verka til að tryggja að framkvæmd samræmist þingvilja þegar kemur að ákvörðun launabreytinga þessa hóps.

Eins og þingheimur þekkir getur ákvörðun launa þessa hóps verið vandsöm. Sú sem hér stendur telur að sú aðferðafræði sem lagt er til að verði notuð í frumvarpi þessu sé betur til þess fallin að ná fram markmiðum um gagnsæi og áreiðanleika en núverandi og fyrri aðferðafræði, auk þess sem aðferðafræðin fylgir rauntímaþróun launa með meiri næmni.

Þar sem vanda á til verka við framkvæmd laganna, verði frumvarpið að lögum, er gert ráð fyrir að innleiðing hefjist eins og áður sagði 1. janúar 2028 og fram að því, í stað þess að hækkun launa þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna verði 9,7% um næstu mánaðamót, er lagt til að hækkunin nemi 3,5% til samræmis við almennar prósentuhækkanir kjarasamninga. Þessi 3,5% hækkun mun einnig eiga sér stað 1. júlí 2027 samkvæmt frumvarpinu og uppsöfnuð árleg hlutfallsleg hækkun launa verður ekki meiri en 3,5% árið 2028. Að mati þeirra sem hér stendur sýnir þessi hópur, þótt fámennur sé, gott fordæmi á tímum hárra vaxta og verðbólgu með því að stilla hækkunum í hóf með þessum hætti og til samræmis við kjarasamninga á almennum vinnumarkaði.

Að lokum vil ég þakka hv. efnahags- og viðskiptanefnd fyrir gott samstarf og góðar umræður um málið, umsagnaraðilum fyrir sínar umsagnir og nefndasviði Alþingis fyrir vinnu sína við vinnslu málsins.