157. löggjafarþing — 114. fundur,  2. júní 2026.

atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir.

312. mál
[20:42]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir) (Flf):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti meiri hluta velferðarnefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir. Með frumvarpi þessu eru lagðar til ýmsar breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir í samræmi við markmið stjórnvalda um að sem flestir taki þátt á vinnumarkaði.

Meðal helstu breytinga er stytting bótatímabils atvinnuleysistrygginga, breytt lágmarksskilyrði fyrir rétti til atvinnuleysistrygginga, einföldun á stjórnsýslu með brottfalli Atvinnuleysistryggingasjóðs, heimild til að stunda nám samhliða greiðslu atvinnuleysistrygginga, lögfesting desemberuppbótar o.fl.

Nefndin fjallaði ítarlega um málið, fékk fjölda gesta á sinn fund og nokkurn fjölda umsagna. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Í umfjöllun nefndarinnar var markmiðum frumvarpsins um að sporna gegn langtímaatvinnuleysi fagnað og tekið undir mikilvægi þess að stuðla að aukinni virkni fyrir þá hópa sem eru útsettir fyrir atvinnuleysi. Í minnisblaði Vinnumálastofnunar til nefndarinnar kemur fram að stofnunin sé tilbúin að hefja innleiðingu á breytingum um leið og frumvarpið hefur verið leitt í lög. Þá var almenn ánægja með breytingar sem skýra nánar heimildir til að stunda nám samhliða atvinnuleysistryggingum, sem og að tekið var undir einföldun stjórnsýslu með brottfalli Atvinnuleysistryggingasjóðs.

Við umfjöllun nefndarinnar komu fram athugasemdir við lögfestingu desemberuppbótar í sameiginlegri umsögn Samtaka atvinnulífsins, Samtaka verslunar og þjónustu, Samtaka iðnaðarins, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu og Viðskiptaráðs Íslands. Meginathugasemdir umsagnaraðila lutu þó að tilhögun frumvarpsins um að stytta bótatímabil atvinnuleysistrygginga annars vegar og breyta lágmarksskilyrðum fyrir rétti til þeirra hins vegar og þeim áhrifum sem slíkar breytingar hefðu á fjárhag sveitarfélaga. Meiri hlutinn leggur til breytingar hvað það varðar sem fjallað verður nánar um hér á eftir.

Að lokinni umfjöllun nefndarinnar vill meiri hluti velferðarnefndar árétta sérstaklega mikilvægi þess að frumvarpið nái fram að ganga til að auka þátttöku einstaklinga á vinnumarkaði og til að sporna gegn langtímaatvinnuleysi og vinna þannig gegn félagslegri einangrun, vanlíðan og fátækt.

Þá bendir meiri hlutinn á að samhliða styttingu bótatímabils verður lagður aukinn kraftur í vinnumarkaðsaðgerðir. Vinnumálastofnun mun annast skipulag þeirra á grundvelli laga um vinnumarkaðsaðgerðir. Í minnisblaði frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu kemur fram að Vinnumálastofnun hafi fengið viðbótarfjármagn í því skyni að auka enn frekar snemmtæka íhlutun, stuðla að virkni atvinnuleitenda og efla eftirlit með greiðslu atvinnuleysisbóta. Meiri hlutinn fagnar því en telur þó mikilvægt að efla úrræði Vinnumálastofnunar enn frekar til að tryggja virkni á vinnumarkaði til að ná fram markmiðum frumvarpsins.

Meiri hluti velferðarnefndar leggur til breytingar á frumvarpinu. Í fyrsta lagi er lögð til breyting varðandi lágmarksskilyrði fyrir rétti til atvinnuleysistrygginga en með frumvarpinu eru lögð til aukin skilyrði fyrir rétti til atvinnuleysistrygginga. Í frumvarpinu er lagt til að atvinnuleitandi geti almennt ekki talist tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins fyrr en viðkomandi hefur starfað á innlendum vinnumarkaði í a.m.k. 12 mánuði á ávinnslutímabili. Samkvæmt gildandi lögum ávinnst slíkur réttur hlutfallslega í samræmi við lengd starfstíma á einungis þremur mánuðum í starfi á innlendum vinnumarkaði.

Með frumvarpinu er jafnframt lagt til að hið sama eigi við um sjálfstætt starfandi einstaklinga. Varðandi endurnýjun réttar til atvinnuleysisbóta er í frumvarpinu lagt til að einstaklingur sem fullnýtt hefur rétt sinn til atvinnuleysisbóta geti áunnið sér rétt innan atvinnuleysistryggingakerfisins að nýju að liðnum 24 mánuðum, hafi hann starfað á vinnumarkaði í að minnsta kosti 12 mánuði eftir lok fyrra bótatímabils í stað sex mánaða samkvæmt gildandi lögum.

Breytingu á lágmarksskilyrðum til atvinnuleysistrygginga var almennt mótmælt í þeim umsögnum sem bárust nefndinni. Fram komu sjónarmið um að breytingin fæli í sér skerðingu á réttindum launafólks. Þá var bent á að strangari lágmarksskilyrði fyrir rétti til atvinnuleysistrygginga gætu bitnað á ungu fólki sem væri að stíga sín fyrstu skref á íslenskum vinnumarkaði, einstaklingum sem starfa í sveiflukenndum atvinnugreinum eða útlendingum sem starfað hafa tímabundið hér á landi. Þá komu einnig fram sjónarmið um að breytingin gæti samhliða haft aukin áhrif á sveitarfélög. Þau sjónarmið verða reifuð nánar og síðar í kafla um breytingartillögu varðandi styttingu bótatímabils atvinnuleysistrygginga.

Í minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytisins er bent á það sem fram kemur í greinargerð með frumvarpinu um að eðlilegt þyki að gera auknar kröfur til atvinnuþátttöku einstaklinga til að þeir teljist tryggðir samkvæmt lögunum. Þessar breytingar eru jafnframt í samræmi við það sem tíðkast annars staðar á Norðurlöndunum. Í greinargerð með frumvarpinu kemur einnig fram að ekki sé gert ráð fyrir að breytingin hafi áhrif á fjárhag sveitarfélaga. Meiri hluti þeirra sem skráðir eru innan atvinnuleysiskerfisins teljist að fullu tryggður og hafi meðaltryggingahlutfall atvinnuleitenda lengi verið yfir 90%.

Meiri hlutinn tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í umræddu minnisblaði ráðuneytisins, sem og í greinargerð með frumvarpinu, og telur eðlilegt að gerðar séu auknar kröfur til atvinnuþátttöku einstaklinga áður en þeir teljist tryggðir samkvæmt lögunum. Meiri hlutinn hefur þó skilning á sjónarmiðum umsagnaraðila varðandi áhrif frumvarpsins á einstaka hópa samfélagsins vegna stöðu þeirra.

Að því virtu leggur meiri hlutinn til breytingar á frumvarpinu þannig að málsgrein sem kveður á um hlutfallslegan rétt til atvinnuleysisbóta, sem til stendur að fella brott, haldi gildi sínu, þó þannig að hlutfallslegur réttur ávinnist fyrst eftir að viðkomandi hefur starfað lengur en í sjö mánuði í stað þriggja samkvæmt gildandi lögum. Launamaður samkvæmt lögunum telst því áfram að fullu tryggður eftir að hafa starfað samfellt í 12 mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir um atvinnuleysisbætur.

Samhliða leggur meiri hlutinn til breytingar á frumvarpinu þannig að nám eða starfsendurhæfing geti komið til hækkunar á tryggingarhlutfalli, þrátt fyrir að viðkomandi einstaklingur nái ekki fullum bótarétti.

Meiri hlutinn telur jafnframt að sömu kröfur eigi að gilda um sjálfstætt starfandi einstaklinga og leggur því til sambærilegar breytingar við ákvæði frumvarpsins sem snúa að sjálfstætt starfandi einstaklingum.

Í öðru lagi er lögð til breyting á frumvarpinu varðandi styttingu bótatímabils atvinnuleysistrygginga. Í frumvarpinu var lagt til að hámarkslengd þess tímabils sem atvinnuleysistryggingar eru greiddar verði stytt um 12 mánuði, þannig að heimilt verði að greiða atvinnuleysistryggingar í samtals 18 mánuði í stað 30 mánaða. Í meðförum nefndarinnar komu fram ýmsar athugasemdir umsagnaraðila um styttingu bótatímabilsins. Í flestum þeirra umsagna sem bárust nefndinni var styttingu bótatímabils mótmælt. Fram komu sjónarmið um að stytting bótatímabils atvinnuleysistrygginga myndi skerða þann rétt sem launafólk ávinnur sér. Alþýðusamband Íslands taldi sérstaklega óljóst hvernig til stæði að ná fram markmiðum um aukna atvinnuvirkni ef skerða ætti afkomuöryggi með styttingu bótatímabils. Í öðrum umsögnum var reifað hvort fyrirhuguð stytting gengi gegn ákvæðum stjórnarskrár lýðveldisins Íslands.

Flestar athugasemdir lutu hins vegar að áhrifum breytinganna á fjárhag sveitarfélaga. Fram komu sjónarmið um að stytting bótatímabils myndi hafa neikvæð áhrif á fjárhag sveitarfélaga, svo sem með auknum kostnaði við félagsþjónustu og fjárhagsaðstoð.

Varðandi framangreindar athugasemdir vekur meiri hlutinn athygli á því sem fram kemur um þetta í greinargerð með frumvarpinu og í minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytisins um að ekki sé gert ráð fyrir að frumvarpið hafi veruleg áhrif á fjárhag sveitarfélaga þrátt fyrir styttingu bótatímabils atvinnuleysistrygginga. Reynslan sýni að þeir sem hafi fullnýtt rétt sinn innan atvinnuleysistryggingakerfisins leiti almennt ekki til sveitarfélaga um aðstoð til framfærslu og að atvinnuleitendur séu almennt sjálfbærir í atvinnuleit sinni.

Í minnisblaði ráðuneytisins er einnig bent á að mat á áhrifum frumvarpsins á fjárhag sveitarfélaga hafi farið fram og það mat lagt fyrir Samband íslenskra sveitarfélaga til umsagnar sem lagðist ekki gegn þeim breytingum sem lagðar eru til í frumvarpinu. Þá er rétt að undirstrika að hvergi annars staðar á Norðurlöndunum er bótatímabilið jafn langt og það er hér á landi, eins og fram kemur í greinargerð.

Meiri hlutinn vekur athygli að í minnisblaði frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu má finna umfjöllun og tölfræðilegar upplýsingar um áhrif frumvarpsins með tilliti til styttingar bótatímabils atvinnuleysistrygginga. Af tölfræðilegum upplýsingum um áhrif á einstaka hópa, einkum með tilliti til aldurs, má ráða að í lok síðastliðins marsmánaðar hafi aðeins um 7% þeirra sem hafa verið atvinnulausir fullnýtt 24–30 mánuði tímabils atvinnuleysisbóta, flestir á aldursbilinu 30–50 ára. Fæstir hafa því nýtt allt bótatímabilið samkvæmt lögunum. Þá vísar meiri hlutinn jafnframt til frekari upplýsinga og tölfræðigagna sem fram koma í umræddu minnisblaði.

Að öllu framangreindu virtu og með hliðsjón af sjónarmiðum umsagnaraðila telur meiri hlutinn að ekki sé tilefni til að ganga eins langt í styttingu bótatímabils og frumvarpið gerði ráð fyrir. Meiri hlutinn telur því rétt að svo stöddu að bótatímabilið verði stytt um sex mánuði í stað 12, þ.e. úr 30 mánuðum í 24 mánuði. Með styttingu bótatímabils í 24 mánuði eru áfram forsendur til að ná til hluta þeirra 7% einstaklinga sem samkvæmt tölfræðiupplýsingum í umræddu minnisblaði ráðuneytisins nýta bótarétt atvinnuleysistrygginga nú frá 24 mánuðum til 30 mánaða.

Að lokum vill meiri hlutinn árétta það sem fram kemur í minnisblaði ráðuneytisins með vísan til 72. gr. stjórnarskrár að það er skýrlega kveðið á um það í frumvarpinu að fyrirhuguð stytting bótatímabils nái eingöngu til þeirra einstaklinga sem hefja nýtt bótatímabil eftir að stytting tímabilsins tekur gildi. Lögin yrðu því ekki afturvirk og þeir sem nú þegar eru atvinnulausir halda þeim rétti sem núgildandi lög kveða á um.

Loks hvetur meiri hlutinn ráðuneytið til að halda áfram að fylgjast með þróun atvinnuleysis og bregðast við eftir atvikum. Þá er nauðsynlegt að eiga samráð við aðila vinnumarkaðarins um þau úrræði sem unnt væri að grípa til með tilliti til stöðu á vinnumarkaði hverju sinni. Meiri hlutinn ítrekar nauðsyn samráðs við aðila vinnumarkaðarins ef tilefni þykir til að stytta tímabil atvinnuleysisbóta enn frekar.

Þá leggur meiri hlutinn til að seinka gildistöku frumvarpsins til 1. júlí 2026 en samkvæmt frumvarpinu sjálfu var gert ráð fyrir því að lögin tækju gildi 1. janúar 2026 og því ljóst að nauðsynlegt er að gera breytingu hvað það varðar. Samhliða því eru lagðar til afleiddar breytingar um seinkun á endurskoðun ráðherra á áhrifum frumvarpsins á fjárhag sveitarfélaga en samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að sú endurskoðun eigi sér stað fyrir 31. desember 2027 en í ljósi seinkunar á gildistöku frumvarpsins leggur meiri hlutinn til að seinka þeirri endurskoðun þannig að hún fari fram í fyrsta lagi fyrir 31. desember 2028.

Til viðbótar liggur fyrir breytingartillaga frá framsögumanni málsins á þskj. 1270 sem er ætlað að tryggja farsæla innleiðingu frumvarpsins. Í henni felst frekari breyting á gildistöku frumvarpsins en lagt er til að seinka gildistöku ákveðinna ákvæða frumvarpsins. Lagt er til að breytt lágmarksskilyrði fyrir rétt til atvinnuleysistrygginga skv. 7. og 9. gr. frumvarpsins taki gildi frá og með 1. september 2026. Þá er lagt til að ákvæði frumvarpsins er varða breytingu á útreikningi atvinnuleysisbóta fyrir hvern dag skv. 14. og 16. gr. taki gildi 1. janúar 2027 til að veita Vinnumálastofnun ráðrúm til innleiðingar, svo sem í tengslum við breytingu á afgreiðslukerfum stofnunarinnar.

Þá leggur meiri hlutinn til lagatæknilegar breytingar og lagfæringar á orðalagi sem er ekki ætlað að hafa efnisleg áhrif og þarfnast ekki sérstakrar umfjöllunar.

Vísast að öðru leyti til ítarlegri umfjöllunar um breytingartillögur í áliti meiri hluta velferðarnefndar.

Meiri hluti velferðarnefndar leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir og lagðar eru til í nefndaráliti.

Undir álit meiri hluta velferðarnefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Grétar Mar Jónsson, Kristján Þórður Snæbjarnarson, Ragna Sigurðardóttir og Sandra Sigurðardóttir.

Að lokum vill meiri hlutinn leggja áherslu á að markmið frumvarpsins er ekki að veikja félagslegt öryggisnet heldur að styðja fólk til virkari þátttöku í samfélaginu og á vinnumarkaði. Atvinnuleysistryggingar gegna mikilvægu hlutverki þegar fólk missir atvinnu sína, en jafnframt er mikilvægt að kerfið styðji við endurkomu fólks til starfa og þátttöku á vinnumarkaði eftir því sem aðstæður þess leyfa.

Meiri hlutinn hefur við meðferð málsins lagt áherslu á að breytingarnar verði hóflegri en upphaflega var lagt til og þannig tekið tillit til þeirra sjónarmiða sem fram komu við þinglega meðferð málsins. Þannig er leitast við að ná jafnvægi milli þess að hvetja til virkni og þess að tryggja áfram nauðsynlegt öryggi fyrir þá sem standa utan vinnumarkaðar um lengri eða skemmri tíma. Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gert hefur verið grein fyrir.

Ég vil aðeins fá að halda áfram því að þetta er mikilvægt. Þetta frumvarp mun spara ríkissjóði talsverða fjármuni og við bindum vonir við að sparnaðurinn verði enn meiri en vegna þeirra aðgerða sem hér eru til umfjöllunar ef vel tekst til í aðgerðum Vinnumálastofnunar við að ná til fólks og fá fólk í virkni og með því að skima snemma fyrir þeim sem líklegri eru til að lenda í langtímaatvinnuleysi og bjóða þeim úrræði. Hér er mikil ábyrgð lögð á Vinnumálastofnun sem hefur fengið aukafjármagn og kom fyrir nefndina, sendi inn minnisblað og kvaðst vera tilbúin í þessa vegferð. Sparnaðurinn við styttingu bótatímabils í 24 mánuði er um 2,4 milljarðar þannig að þetta er mál sem sparar ríkisútgjöld. Tölur frá Vinnumálastofnun sýna að óverulegur hluti þeirra sem tæma bótarétt lendir á framfærslu sveitarfélaga en nefndin leggur engu að síður til að fylgst verði með fjárhagsáhrifum frumvarpsins á sveitarfélögin til að tryggja að ekki falli á þau óvæntar byrðar.

Ég vil líka benda á minnisblað sem kom, hvort það var í morgun eða í gær, ég er ekki alveg viss, sem beðið var um af hálfu minni hlutans að mig minnir. Velferðarnefnd Alþingis ákvað svo á fundi sínum miðvikudaginn 29. maí að óska eftir minnisblaði frá félags- og umhverfisráðuneytinu um breytingu á kostnaðarmati vegna þeirra breytinga sem velferðarnefnd leggur til í nefndaráliti sínu. Ég fer í niðurlagið í þessu minnisblaði, Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir, þar sem stendur, með leyfi forseta:

„Í 6. kafla fyrrgreinds frumvarps er fjallað um mat á áhrifum, en þar kemur meðal annars fram að áætlað væri að stytting á hámarkslengd þess tímabils sem einstaklingar geta fengið greiddar atvinnuleysisbætur, um tólf mánuði eða úr 30 mánuðum í 18 mánuði, hefði í för með sér lækkun útgjalda ríkissjóðs um 6.300 millj. kr. á ársgrundvelli, miðað við að skráð atvinnuleysi mælist á bilinu 3,5-4%, þegar áhrif breytingarinnar væru að fullu komin fram árið 2029. Þá væri gert ráð fyrir að breyting á lögum um atvinnuleysistryggingar hvað varðar ávinnslu atvinnuleysistrygginga þess efnis að atvinnuleitandi þurfi að hafa starfað á innlendum vinnumarkaði í a.m.k. 12 mánuði til að geta talist tryggður innan kerfisins myndi hafa í för með sér lækkun á útgjöldum ríkissjóðs sem nemi allt að 200 millj. kr. á ári.“ — Svona var lagt af stað með þetta frumvarp.

„Í nefndaráliti sínu leggur velferðarnefnd til að hámarkslengd þess tímabils sem einstaklingar geti fengið greiddar atvinnuleysisbætur verði 24 mánuðir, í stað 18 mánaða eins og frumvarpið gerir ráð fyrir. Áætlað er að stytting tímabilsins úr 30 mánuðum í 24 mánuði hafi í för með sér lækkun útgjalda ríkissjóðs um 2.400 millj. kr. á ársgrundvelli […] Þá leggur nefndin til í áliti sínu að atvinnuleitandi þurfi að hafa starfað á innlendum vinnumarkaði í a.m.k. sjö mánuði til að geta talist tryggður innan kerfisins, í stað 12 mánaða eins og frumvarpið gerir ráð fyrir.“

Þetta er sem sagt allt komið fram í nefndarálitinu en það var sérstaklega beðið um þetta til að átta sig betur á hvað þetta þýðir í sparnaðarupphæðum.

Ég vona að þetta hafi verið skýrt. Þetta er kannski pínu snúið eða flókið. Hér er í rauninni um þrjár reglur að ræða, þ.e. þennan ávinnslutíma til að komast inn í kerfið, síðan er það þetta svokallaða bótatímabil og svo að komast aftur inn. Þarna eru sem sagt breytingar á mánuðum og við erum að fara frá gildandi lögum, úr þremur mánuðum í sjö, og ávinnslutími til að koma aftur er sex mánuðir og upp í 12 og svo sjö og bótatímabilið var 30 en við erum núna að enda með það í 24 mánuðum. Hér er því um að ræða þrjár meginreglur og vísað í 7. gr., 11. gr. og 12. gr. frumvarpsins.

Það verður gaman að heyra fleiri taka til máls í ræðum. Hér eru hv. þingmenn sem sátu í hv. velferðarnefnd og ég vil nota tækifærið og þakka þeim samveruna og samvinnuna, en starfi okkar á þessu þingi fer bráðum að ljúka. Sérstaklega þakka ég hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir hans veru í nefndinni. Þetta var virkilega ánægjulegt og vonandi kemur hann bara sem fyrst aftur sem varaþingmaður. — Takk fyrir.