almennar íbúðir.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti meiri hluta velferðarnefndar við frumvarp til laga um breytingar á lögum um almennar íbúðir. Frumvarpið er liður í áformum stjórnvalda um að fjölga almennum íbúðum í samræmi við fyrsta aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum sem kynntur var í október 2025. Með frumvarpinu er lagt til að stofnframlög ríkisins samkvæmt lögum um almennar íbúðir verði hækkuð til að mæta miklum fjármagnskostnaði stofnframlagshafa við núverandi efnahagsaðstæður og styrkja þar með grundvöll fyrir uppbyggingu leiguhúsnæðis með viðráðanlegum kjörum. Frumvarpinu er einnig ætlað að einfalda skilyrði stofnframlaga sem veitt eru til kaupa á almennum íbúðum.
Nefndin fjallaði ítarlega um málið, fékk á fund sinn fjölda gesta og að auki bárust níu umsagnir ásamt minnisblaði frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á hlutföllum stofnframlaga ríkisins til samræmis við þau áform sem kynnt voru í fyrsta aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar um húsnæðismál. Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er markmið leiguíbúðakerfis samkvæmt lögunum að bæta húsnæðisöryggi fjölskyldna og einstaklinga undir ákveðnum tekju- og eignamörkum með því að auka aðgengi að öruggu og viðeigandi leiguhúsnæði og stuðla að því að húsnæðiskostnaður sé í samræmi við greiðslugetu leigjenda eða að jafnaði ekki umfram fjórðung ráðstöfunartekna.
Með frumvarpinu er því lagt til að almennt stofnframlag ríkisins geti numið allt að 23% í stað 18% af stofnvirði almennra íbúða, líkt og gildandi lög mæla fyrir um. Jafnframt fær ráðherra samkvæmt frumvarpinu heimild til að ákveða með reglugerð hlutfall stofnframlagsins með hliðsjón af markaðsaðstæðum hverju sinni. Þá er lagt til að viðbótarframlag frá ríkinu verði hækkað úr 4% í 5%.
Frumvarpinu var vel tekið í flestum umsögnum sem nefndinni bárust, það væri mikilvægt skref í átt að frekari uppbyggingu leiguhúsnæðis fyrir leigjendur undir tekju- og eignamörkum. Þó komu fram nokkrar ábendingar við einstaka þætti frumvarpsins, svo sem um útfærslu á hækkun stofnframlags.
Í umsögnum ÖBÍ réttindasamtaka og Brynju leigufélags kom fram tillaga um að viðbótarframlag yrði hækkað um 10% en ekki 5% til að tryggja betur aðgang viðkvæmra hópa að öruggu húsnæði. Í minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytis var hins vegar bent á að hækkun viðbótarframlags ríkisins úr 4% í 5% sé í samræmi við fyrsta aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar. Meiri hlutinn tekur undir mikilvægi þess að tryggja aðgang viðkvæmra hópa að öruggu húsnæði en tekur þó undir með ráðuneytinu og telur rétt að frumvarpið haldist óbreytt að þessu sinni.
Í umsögn Þroskahjálpar kom fram að fjölga þyrfti húsnæðisúrræðum fyrir fatlað fólk og leggja af herbergjasambýli í samræmi við réttindi fatlaðs fólks sem tryggð eru í lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir sem og í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Í minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytis er tekið undir mikilvægi þess að auka framboð húsnæðis fyrir fatlað fólk. Bent er á að starfshópur á vegum ráðuneytisins vinni nú að mótun tillagna um uppbyggingu húsnæðis fyrir fatlað fólk og þróun þjónustu til næstu ára. Lögð væri áhersla á áframhaldandi uppbyggingu húsnæðis í samvinnu við sveitarfélög til að mæta þörf og stytta biðlista sem og að þróa fjölbreyttari búsetuleiðir og efla stuðning við fólk í eigin húsnæði þannig að þjónustan fylgi einstaklingnum fremur en búsetuformi. Markmiðið væri að tryggja sjálfstætt líf, aukin lífsgæði og sjálfbærari framkvæmd þjónustunnar til framtíðar.
Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið Þroskahjálpar og telur mikilvægt að efla húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk, einkum með tilliti til lögbundinna skyldna. Meiri hlutinn telur þó brýnt að umræddur starfshópur haldi áfram að móta tillögur að uppbyggingu húsnæðis fyrir fatlað fólk og beinir því til ráðuneytisins að tryggja áframhaldandi vinnu.
Aðrar ábendingar umsagnaraðila lutu m.a. að fjárhagslegum áhrifum frumvarpsins og stimpilgjalda á óhagnaðardrifin leigufélög. Meiri hlutinn vísar til þeirra sjónarmiða sem fram koma í umræddu minnisblaði ráðuneytisins hvað varðar þær ábendingar. Þá ítrekar meiri hlutinn það sem fram kemur í greinargerð frumvarpsins um að frumvarpinu sé ekki ætlað að hafa fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð verði það að lögum. Hækkun á stofnframlagi rúmist innan fjárheimilda til stofnframlaga hverju sinni samkvæmt fjárlögum.
Meiri hluti velferðarnefndar leggur til breytingar á frumvarpinu. Í fyrsta lagi er lögð til breyting varðandi hlutfall stofnframlags. Í umsögnum Bjargs íbúðafélags, ASÍ og BSRB er bent á að orðalag frumvarpsins ætti fremur að kveða á um tiltekinn ramma, þ.e. að stofnframlagið skuli vera á bilinu 18–23%. Ráðherrann hafi þá heimild til að kveða nánar á um hlutfall stofnframlagsins innan þeirra marka. Að óbreyttu telja framangreindir umsagnaraðilar að hlutfall stofnframlags geti farið niður fyrir 18% sem að þeirra mati samrýmist ekki áformum frumvarpsins og greinargerð þess.
Meiri hluti nefndarinnar leggur ríka áherslu á að skýrt sé að svigrúm til að ákvarða hlutfall stofnframlags sé á bilinu 18–23% og geti þar með aldrei orðið minna en 18%. Ráðherra ákvarðar hlutfall stofnframlags síðan nánar með reglugerð, þó innan áðurgreindra marka og með hliðsjón af markaðsaðstæðum hverju sinni.
Meiri hlutinn ítrekar að markmið frumvarpsins, með hliðsjón af lögum um almennar íbúðir, er að efla almenna íbúðakerfið með hærri stofnframlögum en gildandi lög kveða á um til að bregðast við miklum fjármagnskostnaði stofnframlagshafa við núverandi efnahagsaðstæður og styrkja þar með grundvöll uppbyggingar leiguhúsnæðis á viðráðanlegum kjörum. Meiri hlutinn telur það þess vegna ekki samrýmast því markmiði ef unnt væri að lækka hluta stofnframlags niður fyrir það hlutfall eins og það er í núgildandi lögum, þ.e. 18%.
Meiri hlutinn leggur því til að orðalag frumvarpsins kveði á um að hlutfall stofnframlags skuli vera á bilinu 18–23%. Af því leiðir að nauðsynlegt er að kveðið verði á um nákvæmt hlutfall með reglugerð innan framangreinds ramma. Leggur meiri hlutinn því samhliða til breytingu á orðalagi frumvarpsins um að ráðherra skuli með reglugerð kveða á um nákvæmt hlutfall stofnframlags ríkisins innan þeirra marka sem kveðið er á um, þ.e. á bilinu 18–23%.
Í öðru lagi er lögð til breyting varðandi gildistöku. Í ljósi þess að hækkanir á stofnframlagi ríkisins voru boðaðar á kynningu á fyrsta húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar hinn 29. október 2025 telur meiri hlutinn eðlilegt að hækkanir stofnframlagsins taki mið af því. Þar með og í samráði við félags- og húsnæðismálaráðuneyti leggur meiri hlutinn til að hækkun stofnframlaga ríkisins, þ.e. hækkun úr 18 í að hámarki 23%, sem og hækkun viðbótarframlags, þ.e. úr 4% í allt að 5%, taki til þeirra stofnframlaga sem veitt hafa verið frá og með nóvember 2025. Breytingin hefur ekki áhrif á kostnaðarmat fyrir yfirstandandi ár. Þá eru til staðar ónýttar fjárheimildir frá 2025 og hvetur meiri hlutinn ráðherra til að skoða nýtingu þeirra í samræmi við lög um opinber fjármál.
Þá er lögð til breyting á orðalagi sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif og þarfnast ekki sérstakrar umfjöllunar.
Vísast að öðru leyti til ítarlegrar umfjöllunar um breytingartillögur í áliti meiri hluta velferðarnefndar.
Meiri hluti velferðarnefndar leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir og lagðar eru til í nefndarálitinu.
Undir álit meiri hluta velferðarnefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Grétar Mar Jónsson, Kristján Þórður Snæbjarnarson, Ragna Sigurðardóttir og Sandra Sigurðardóttir.
Frú forseti. Með þessu frumvarpi er leitast við að einfalda framkvæmd laga um almennar íbúðir og skapa betri forsendur fyrir uppbyggingu húsnæðis á viðráðanlegum kjörum. Jafnframt er markmiðið að tryggja að opinber stuðningur nýtist sem best og skili sér í auknu framboði íbúða fyrir þá sem á þeim þurfa að halda. Meiri hlutinn telur að þær breytingar sem lagðar eru til í nefndarálitinu styrki frumvarpið og stuðli að skýrari framkvæmd laganna. Með þeim er leitast við að efla húsnæðisöryggi, bæta nýtingu opinbers stuðnings og skapa betri skilyrði til áframhaldandi uppbyggingar almennra íbúða um land allt.
Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem lagðar eru til í nefndarálitinu.
Frú forseti. Hér eru kannski stærstu tíðindin þau að hlutfall stofnframlaga sé á bilinu 18–23% og geti þar með aldrei orðið minna en 18%. Þetta skiptir höfuðmáli og er gríðarlega sanngjarnt að það sé algerlega skýrt í þessu frumvarpi. En markmiðið er skýrt; hér er verið að tryggja að kerfi almennra íbúða virki áfram sem raunhæft úrræði til uppbyggingar hagkvæms leiguhúsnæðis fyrir tekjulægri hópa þrátt fyrir háa vexti og aukinn byggingarkostnað. Frumvarpinu er að sjálfsögðu ekki ætlað að leysa allan húsnæðisvanda landsins heldur að styrkja það úrræði sem ætlað er þeim sem eiga erfiðast með að komast inn á húsnæðismarkaðinn.
Hér er ekki um neinn aukakostnað frá ríkissjóði að ræða og hér er ekkert sjálfkrafa. Úthlutun stofnframlaga verður áfram bundin þeim fjárheimildum sem Alþingi ákveður í fjárlögum hverju sinni. Frumvarpið felur ekki í sér ótakmarkaðar skuldbindingar ríkisins heldur breytingar innan þess fjárhagsramma sem Alþingi ákveður. Af hverju þessar breytingar? Jú, það er vegna erfiðleika hér hvað varðar háa vexti, það er aukinn byggingarkostnaður og erfiðari fjármögnun. Afleiðingin hefur verið minni uppbygging hagkvæmra leiguíbúða og frumvarpinu er ætlað að tryggja að verkefnið geti farið af stað við núverandi aðstæður.
Flestir umsagnaraðilar voru tiltölulega sáttir. Helstu gagnrýnisraddir komu frá Samtökum atvinnulífsins og Viðskiptaráði sem töldu að vandinn væri fyrst og síðast skortur á framboði en ekki skortur á styrkjum og að auka þyrfti markaðsframboð almennt. En þetta þarf allt að vinna saman, ekki bara að eitt útiloki annað. Vissulega er aukið framboð mikilvægt en það tryggir ekki sjálfkrafa að tekjulægri hópar hafi efni á húsnæði, þannig að almennar íbúðir eru viðbót við markaðinn en ekki staðgengill.
Ég held að ég sé búin að fara að mestu yfir aðalatriðin og það sem skiptir mestu máli. Það er spurning hvort fleiri óski eftir að taka til máls um þetta mikilvæga mál en þess er vænst að við stöndum öll saman um það því að þetta skiptir miklu máli fyrir tekjulága hópa. Ég vil nota tækifærið og þakka hv. velferðarnefnd fyrir samstarfið í þessu máli, sem var afskaplega gott, og vonast til að þetta nái fljótt í gegn á þessu þingi.