Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ég sá í fréttum RÚV hérna rétt áður en ég gekk inn í salinn ánægjulega frétt um að innviðaráðherra hefði breytt reglugerð er varðar endurnýjun ökuskírteina eldri borgara þannig að eldri borgarar þurfi ekki að fá læknisvottorð fyrr en við 75 ára aldur, ekki við 65 ára aldur eins og nú er. Þetta er ánægjuleg breyting, gott og blessað, svo langt sem hún nær. En þá kem ég að raunverulegum störfum þingsins í þessum efnum vegna þess að fyrir liggur frumvarp, flutt af hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur og fleiri þingmönnum, sem ég held að sé nokkur mikil sátt um hér í þingsal, um að breyta lögum um endurnýjun ökuskírteina þannig að endurnýjunin sjálf þurfi ekki að fara fram. Þessi reglugerðarbreyting ráðherra sem ég minntist á áðan dregur ekki úr kröfu um endurnýjun skírteina heldur lýtur bara að því að það þurfi ekki lengur að hafa læknisvottorð við fyrstu endurnýjun. Í þessu frumvarpi hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur er lögð til sú breyting á umferðarlögum að ekki þurfi að endurnýja ökuréttindi jafn ört eftir 65 ára aldur og gildandi lög kveða á um núna, á fimm ára fresti og jafnvel ársfresti.
Þess vegna finnst mér skrýtið, virðulegur forseti, að það hafi ekki verið ljáð máls á því að fá þetta mál, sem afgreitt hefur verið úr nefnd, hingað inn í þingsal til að gefa þingheimi kost á að breyta umferðarlögum að þessu leyti. Það er mikil eftirspurn eftir þessu hjá stórum hluta þjóðarinnar og menn eru sammála um þetta mál, held ég, hér á þinginu. Nú þegar örfáir dagar eru eftir af þessum þingvetri mælist ég til þess að menn sammælist um að taka inn þetta mál, þótt það sé þingmannamál, en láti málið ekki liggja með svona augljósum hætti, að ríkisstjórnin og ráðherrann séu að reyna að stagbæta gallaðar núgildandi reglur, heldur hleypi þessu máli hingað inn í þingsal svo að við fáum tækifæri til þess að gera raunverulegar breytingar til batnaðar í þessum málum.