Störf þingsins.
Frú forseti. Ég vil fagna þeim mikilvæga áfanga sem náðist í gær þegar hæstv. heilbrigðisráðherra, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands og framkvæmdastjóri Ljóssins undirrituðu nýjan fjögurra ára langtímasamning um endurhæfingarþjónustu fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein. Ef litið er til sögu fjármögnunar Ljóssins sést vel hvers vegna þessi samningur skiptir máli. Frá fyrstu árum starfseminnar hefur Ljósið starfað á grundvelli ólíkra samninga við opinbera aðila. Árið 2020 var í fyrsta sinn gerður þriggja ára þjónustusamningur við Ljósið að fjárhæð 220 millj. kr. Á sama tíma fjölgaði þjónustuþegum verulega og umfang starfseminnar jókst ár frá ári. Þrátt fyrir þann vöxt fylgdi fjármögnunin ekki þeirri raunverulegu þörf sem myndaðist í starfsemi Ljóssins. Ljósið þurfti ítrekað að leita eftir tímabundnum viðbótarfjárveitingum frá fjárlaganefnd til að mæta aukinni eftirspurn eftir þjónustu þess. Það skapaði óvissu fyrir starfsemina og þá einstaklinga sem á þjónustunni þurfa að halda. Það er því sérstaklega ánægjulegt að framlag til Ljóssins hefur nú verið aukið varanlega og nemur nú 487 millj. kr. sem er ríflega tvöföldun frá árinu 2020. Nýr langtímasamningur byggir á þeim grunni og veitir starfseminni þann stöðugleika sem hún hefur lengi kallað eftir.
Frú forseti. Sem þingmaður Samfylkingarinnar fagna ég þessari mikilvægu ákvörðun ríkisstjórnarinnar og því frumkvæði sem hæstv. heilbrigðisráðherra Alma Möller hefur sýnt í málinu. Endurhæfing er nauðsynlegur hluti af góðri heilbrigðisþjónustu og með þessum samningi er tryggt að Ljósið geti áfram verið sá styrkur og stuðningur sem svo margir hafa reitt sig á í bataferlinu og hjálpað fólki að ná aftur betri lífsgæðum.