Störf þingsins.
Frú forseti. Ég vil byrja á að óska aðstandendum Ljóssins til hamingju með samninginn í gær. Þetta er mikilvægt mál. Þetta fer þá í þær upphæðir sem fjárlaganefnd, í fjárlögunum fyrir 2025, afgreitt haustið 2024, lagði til að yrði bætt við það fjármagn sem var þá í fjárlögum. Þetta er nákvæmlega sú tala sem er komin núna. Ég vona svo sannarlega að þetta starf gangi vel og að flutningur í nýjar höfuðstöðvar félagsins í Grafarvogi síðar í sumar gangi vel fyrir sig og sú stækkun og það sem verður þar í boði fyrir skjólstæðinga Ljóssins.
Mig langar líka aðeins að koma inn á það slæma ástand sem kom upp í málefnum Kristnesspítala í Eyjafjarðarsveit, sem er raunar hluti af Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þar er kominn upp mjög alvarlegur mygluvandi þannig að það er verið að loka öllu húsnæði þar meira og minna. Það þarf að finna lausnir fljótt og vel á því hvernig eigi að standa að þeirri starfsemi. Á Kristnesspítala fer fram endurhæfingar- og öldrunarlækningaþjónusta á vegum Sjúkrahússins á Akureyri og þar er veitt þjónusta sem skiptir íbúa Norðurlands og Austurlands gríðarlega miklu máli. Þegar fram koma upplýsingar um myglu í húsnæðinu og að færa þurfi starfsemi vegna myglusvepps þá er ljóst að staðan er orðin grafalvarleg. Það er óásættanlegt að starfsfólk og sjúklingar þurfi að búa við óvissu um hvort húsnæði standist þær kröfur sem gera verður til heilbrigðisstofnunar. Kristnes hefur lengi verið burðarás í sérhæfðri endurhæfingu utan höfuðborgarsvæðisins og ef húsnæðisvandi grefur undan þeirri starfsemi bitnar það beint á sjúklingum, aðstandendum og heilbrigðiskerfinu öllu.
Frú forseti. Þetta slæma ástand bætist við þann mygluvanda sem hefur verið á hjúkrunarheimilinu Hlíð og hefur tekið núna undanfarin ár um 15–18% af öllum legurýmum á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þetta bætist við þann vanda og er að skapa stórhættulega og mjög slæma stöðu á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Það þarf að bæta úr þessu, frú forseti.