157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[12:24]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Ása Berglind Hjálmarsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir andsvarið. Já, þetta var talsvert til umræðu og það er rétt sem hv. þingmaður segir, andinn í lögum um varaflugvallargjald var klárlega sá að þær tekjur rynnu til varaflugvalla. En nú er þeim dreift víðar og það vekur spurningar um hvort ekki þurfi að koma til frekari fjármögnun á viðhaldi flugvallakerfisins, svo sem eins og margs annars í samgöngukerfinu. Víða er þörf á meira fjármagni en á sama tíma skilst mér að ekki megi eyrnamerkja ákveðnar skatttekjur til ákveðinna verkefna þannig að það er kannski ákveðin þversögn í þessu. En við í meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar, og ég leyfi mér bara að segja nefndarmenn allir, erum alveg á því að það vanti frekara fjármagn til að klára mikilvæg verkefni á flugvöllum. Ég nefni þar til að mynda aðflugsljós á Akureyrarflugvelli sem við settum fram sem forgangsverkefni þegar og ef það myndast svigrúm innan áætlunarinnar þegar innviðafélagið fer af stað.