157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[12:25]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég tek svo sannarlega undir það sem kemur fram í nefndaráliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar varðandi þetta og varaflugvallargjaldið vegna þess að ég sé ekki annað en að nefndin hafi einmitt ákveðnar efasemdir um þetta með tilliti til lagaumgjarðarinnar og laganna um varaflugvallargjaldið. Hér eru raunverulega efasemdir af hálfu nefndarinnar um þetta atriði og það er mikilvægt að það skýrist. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég geri athugasemd við þetta. Ég gerði athugasemd við þetta við hæstv. innviðaráðherra fyrir fyrri umræðu og reyndar í óundirbúnum fyrirspurnatíma líka og fyrr í vetur. Það er rosalega mikilvægt að halda sig í anda laganna. Sá sem hér stendur veit manna best meðal þingmanna varðandi lög um opinber fjármál að það má ekki binda fjármagn við ákveðna hluti. En hér er búinn að vera pólitískur vilji í þinginu í öll þessi ár um að koma þessu í betra horf og þessi lagaumgjörð sett um varaflugvallargjaldið. Þess vegna hvet ég þingheim — og ég er síðan með ákveðnar breytingartillögur inn í þessa umræðu sem snúa einmitt að aðflugsljósum á Akureyri og að hraða framkvæmdum á Egilsstaðaflugvelli fyrir einmitt varaflugvallargjaldið.