157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[12:27]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Ása Berglind Hjálmarsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sitt seinna andsvar. Ég vildi hreinlega óska þess að það væri bara hægt að samþykkja þessar breytingartillögur, það væri bara mjög gott. En við erum auðvitað að vinna með ákveðna ramma hér þannig að ég velti fyrir mér hvort það sé eitthvað í flugvallakerfinu sem hv. þingmaður sér þá að megi missa sín á móti. Það væri áhugavert að heyra það. Við getum tekið það í samtölum síðar en svo í þessari skýrslu sem ég minntist á frá Samtökum iðnaðarins kemur einmitt fram að það er líka talsvert mikil innviðaskuld í flugvallakerfinu. Þetta er auðvitað bara verkefni til framtíðar að klára að byggja þá upp eins og aðra þætti í samgöngukerfinu okkar. En mikið vona ég að innviðafélagið fái góðan framgang og að það hrökkvi hratt af stað því að ég er sannfærð um að það muni skapa það svigrúm sem við þurfum til að einmitt að flýta mikilvægum verkefnum eins og þeim sem hv. þingmaður er búinn að leggja hér fram í sinni breytingartillögu.