157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[12:31]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Ása Berglind Hjálmarsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir andsvarið og sömuleiðis þakka ég hv. þingmanni fyrir ákaflega góða vinnu í nefndinni sem við sitjum í. Varðandi jarðgöngin og þessi göng sem eru ekki líkleg til að vera sjálfbær þegar kemur að gjaldtöku, t.d. vegna veggjalda, þá er þetta ákveðið úrlausnarefni innan innviðafélagsins. En þessir kostir, sem eru þá þar sem er ekki næg umferð til að þau standi undir sér, koma alltaf til með að þurfa að fá stuðning frá ríkinu. Það verður ríkisstyrkt framkvæmd. Hún getur annaðhvort verið bara beint inni í samgönguáætlun áfram, eins og verið hefur, eða farið í innviðafélagið þar sem þarf þá að stofna dótturfélag og þannig getur þetta verið þar með fjármagni frá ríkinu. Það er hægt að fara þessar tvær leiðir og það er bara mat hverju sinni hvort er hagkvæmara varðandi t.d. lánakjör og fjármögnun og annað. Þetta er hægt.