157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[12:34]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Ása Berglind Hjálmarsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sitt seinna andsvar. Einmitt, þetta hefur verið mikið til umræðu og augljóst að það eru uppi miklar áhyggjur víða um land af skertu sambandi út af þessari útfösun. Ég held að það sé verkefni okkar þingmanna í umhverfis- og samgöngunefnd að vera með augun á þessum bolta og kalla eftir upplýsingum strax og við komum í haust um hvernig þetta verkefni gengur því að á sama tíma á þetta ekki að koma niður á sambandi. Við þurfum að skoða það. Eins og hv. þingmaður veit hefðum við gjarnan viljað vera með meira fjármagn til að klára þetta og fjarnetið á Vestfjörðum setjum við inn hérna sem verkefni sem við myndum vilja hrinda í gang ef það skapast meira svigrúm innan áætlunar þegar innviðafélagið hrekkur í gang. Áætlaður kostnaður við að klára þetta 2027 var 236 milljónir, en það á að klárast 2028 samkvæmt áætlun, þannig að það er verið að vinna samkvæmt áætlun sem felur það í sér að þetta eigi að vera búið árið 2028.