157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[12:35]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég fagna því að við séum að fara yfir samgönguáætlun og vil byrja á að þakka framsögumanni málsins fyrir yfirlitið hér í dag og fyrir samvinnu í nefndinni. Ég mun koma dálítið inn á í ræðu hér síðar hvað mér finnst vera sérstaklega jákvætt í áætluninni og hvar þurfi að gera betur. En mig langar til að nýta þetta tækifæri til að fjalla aðeins um hvað við erum raunverulega að gera í viðbótarfjárfestingu því að það hefur mikið verið talað um að gera sérstakt átak, að nú þurfi að gyrða sig í brók og hér sé verið að leggja mikið viðbótarfjármagn í samgöngumálin. Mér brá satt best að segja þegar ég sá þessa tölu í fréttum í gær, 157 milljarða kr., því að það er auðvitað fyrir allt tímabilið. En við hljótum að þurfa að horfa á þær aðgerðir sem ríkisstjórnin sjálf leggur fram og eru fjármagnaðar í fjármálaáætlun. Það er vel og ég fagna því mjög að það sé verið að auka um 10 milljarða kr. á milli ára. Það er frábært. En ég myndi halda að þörfin sé í kringum 30, eitthvað svoleiðis. En þessi hækkun er síðan flöt út tímabilið sem þýðir að ríkisstjórnin er að tryggja þarna 50 milljarða út tímabilið, sem er í raun og veru allt og sumt. Mig langar til að velta því upp við hv. þingmann: Er það nóg? Er ekki tækifærið núna þegar það er slaki í hagkerfinu að fara hraðar inn í aukningu? Skiptir það ekki meira máli fyrir þessa uppsöfnuðu þörf og framtíðina heldur en hallalaus fjárlög? Mig langar sérstaklega að spyrja að þessu af því að ég get ekki séð annað þegar ég horfi á fjárlögin og ég horfi á innviðafélagið og sannarlega öll þau jarðgöng eða stórar framkvæmdir sem á að fara í, en að það þurfi, eins og hv. þingmaður kom inn á, meðgjöf frá ríkinu. Ég get ekki séð að sú meðgjöf eða eitthvert viðbótarframlag sé tryggt (Forseti hringir.) og það mun skapa mikla óvissu um að nokkuð af þeim verkefnum verði að veruleika sé ekki gert ráð fyrir því fjármagni í fjármálaáætlun. (Forseti hringir.)

Mig langar aðeins að spyrja hv. þingmann út í hvernig hann sér þetta fyrir sér. Er þetta nóg? Er þetta tryggt?