157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[12:41]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Ása Berglind Hjálmarsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Inn í innviðafélagið munu fara ákveðnar eignir, m.a. Ölfusárbrú. Það gæti t.d. losað um fjármagn sem gæti þá nýst sem sérstök fjármögnun varðandi Fljótagöng.

Varðandi jafnræði og samræmingu og samhengi við veggjöld er samanburðurinn við bílastæðagjöld ágætur vegna þess að þar eru einkaaðilar úti um allt að verðleggja með sínum hætti. En þegar við erum með innviðafélag sem heldur alfarið utan um veggjöld úti um allt land þá er einmitt hægt að samræma og passa upp á þetta jafnræði. Þannig að ég myndi segja að það væri mikill kostur að innviðafélagið er í eigu ríkisins og það verður sú regnhlíf sem verður yfir öllum þessum framkvæmdum sem koma til með að hafa einhvers konar veggjöld.