svör ráðherra við fyrirspurnum þingmanna.
Herra forseti. Ég vil beina því til hæstv. forseta hvort ekki sé hægt að ganga í það að lagfæra svör ráðherra við fyrirspurnum þingmanna. Ég lagði fram fyrirspurn 18. nóvember á síðasta ári og henni hefur ekki enn verið svarað. Sama má segja um fjölmargar aðrar fyrirspurnir sem ég hef lagt hér fram, ein er t.d. frá því í desember og svo eru fjöldamargar aðrar fyrirspurnir sem ekki hefur verið svarað. Samkvæmt 57. gr. þingskapalaga ber ráðherra að svara fyrirspurnum þingmanna innan tveggja vikna. Þarna má telja þær vikur, sem það hefur tekið hæstv. ráðherra að svara, í tugum vikna. Nú er þingi senn að ljúka næstu vikum og ég beini því til hæstv. forseta að ganga í það að biðja ráðherra um að svara þessum fyrirspurnum sem allra fyrst. Það hafa ekki einu sinni komið skýringar á fjölmörgum (Forseti hringir.) af þessum fyrirspurnum eða tilkynning um að þetta dragist eitthvað. Það eru liðnir sjö mánuðir frá því elsta fyrirspurnin var lögð fram (Forseti hringir.) og ekkert svar komið.
(Forseti (IngÞ): Þessi áskorun hv. þingmanns er móttekin.)