samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir ágætisræðu. Varðandi þennan síðasta punkt um aukna flugumferð til landsins, þá hefur sá sem hér stendur talað mjög um það síðustu tíu ár hér í þinginu. Það er búið að gera töluvert mikið, eins og á Akureyri, og það er búið að undirbúa framkvæmdir á Egilsstöðum. Þær eru tilbúnar. Það er meira að segja búið að kanna hvernig stendur á hjá verktökum á Egilsstöðum og í nærsveitum. Það væri í raun hægt að fara í þessa framkvæmd í sumar. Skipulagsmálin eru komin. Hugsunin þarna er einmitt að auka pláss fyrir vélar á jörðu niðri á varaflugvelli.
Með því að fara af stað með framkvæmdir á Egilsstöðum sem fyrst, sem eru fjármagnaðar með varaflugvallargjaldi, þá er hægt að stórbæta þá aðstöðu á einungis um þremur árum til viðbótar við það mikla pláss sem er orðið til á Akureyri. Við sem erum í þessum sal þekkjum það sem gerðist 26. febrúar. Við þurfum að hafa það í huga og halda áfram. Ein af mörgum athugasemdum sem ég geri við þessa áætlun er að verið sé að nota varaflugvallargjald í aðra hluti en að byggja upp alþjóðaflugvallakerfi og að byggja upp varaflugvelli landsins. Ég gerði það í andsvörum fyrr í dag.
Í nefndaráliti meiri hlutans er lögð áhersla á að finna stað á suðvesturhorninu fyrir varaflugvöll með 2.100 m löngum brautum. Það er ekkert minnst á innanlandsflug í því sambandi heldur aðeins á þessa tölu, 2.100 m. Nú þekki ég ágætlega til flugs og hef aldrei séð þessa tölu neins staðar. Mig grunar að eitthvað hafi komið fram í Rögnunefndinni á sínum tíma í tengslum við það að byggja ætti upp innanlandsflugvöll til að sinna varaflugvelli. Mig grunar að hv. þingmaður hafi komið töluvert að þessum texta í nefndaráliti. Gæti ég fengið frekari skýringu á því hvernig þessi tala, 2.100 m, er fengin?