samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka þetta annað andsvar. Ég þarf sjálfsagt að finna þessa tölu í viðkomandi skýrslu og athuga hvort hún hafi nokkuð misprentast í þessu nefndaráliti en ég held nú ekki.
Varðandi færri flughreyfingar á Reykjavíkurflugvelli, þá er það alveg rétt. Það má segja að tölurnar dragi ekki alveg fram hversu miklar breytingar hafa orðið því að ótrúlega margar lendingar eru vegna þyrlna sem hafa verið í útsýnisflugi og gert út frá Reykjavíkurflugvelli. Þannig að það er alveg rétt að umfang flugs hefur dregist saman á undanförnum árum á Reykjavíkurflugvelli.