samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir góða ræðu. Ég tek undir orð hans um samstarf í nefndinni og um að umhverfis- og samgöngunefnd hafi verið æðiupptekin við þá vinnu að búa til alvörusamgönguáætlun.
Það er margt sem maður vildi spyrja. Mig langar að koma að tveimur atriðum í ræðu hv. þingmanns. Það er spennandi að tilkoma innviðafélagsins verði að veruleika og að það félag fúnkeri eins og við gerum ráð fyrir að það eigi að fúnkera og geti mögulega tekið framkvæmdir sem eru á samgönguáætlun undir sinn hatt og að fjármagnið renni til samgönguáætlunar.
En þá kemur að freistnivandanum sem ég vil bera undir hv. þingmann. Fyrr í dag var minnst á það fjármagn sem verið er að setja í samgöngumál. Viðurkennir ekki hv. þingmaður að þegar fer að kreppa að verði mögulega freistnivandi hjá ríkinu að nýta sér það til að draga úr framlögum til samgönguáætlunar í raun — að viðbótarfjármunir sem verða til verði þá hluti af þessari hefðbundnu fjármögnun en það verði ekki viðbót? Ef við horfum á undangengin ár geta orðið atburðir sem kalla eftir því að þessum fjármunum verði ráðstafað með öðrum hætti.