samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Í stuttu máli má auðvitað ræða allt. Ég held engu að síður að reynslan sýni að jafnvel þó að framkvæmdir sem kalla á veggjöld séu umdeildar fyrir fram, eins og Hvalfjarðargöng eru ágætisdæmi um, þá hafi allir verið sáttir við þær eftir á. Ef við erum heiðarleg og förum yfir það hvernig hlutföllin voru í fyrri samgönguáætlun, þar sem olíu- og bensíngjöld féllu til að tveimur þriðju hlutum á höfuðborgarsvæðinu en fjárfestingarverkefni í eldri samgönguáætlun voru kannski 3–5% á höfuðborgarsvæðinu, þá hefur sá halli verið réttur töluvert af, þó að hann sé enn þá mikill, t.d. með tilkomu samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og þeirra metnaðarfullu verkefna í stofnvegum, borgarlínu og hjóla- og göngustígum sem þar eru.