samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sína yfirferð og þakka sömuleiðis fyrir ánægjulegt samstarf í nefndinni. Ég held að það sé óhætt að segja að það sé af nægu að taka í þessum málaflokki og eftir tugi eða á annað hundrað umsagna er auðvitað ljóst að við þurfum að gera miklu meira en við erum að gera í dag.
Mig langar þess vegna að vera á nótum innviðafélagsins sem var fjallað um hérna áðan. Ég er mjög fylgjandi því að þessu máli sé komið í einhvers konar farveg líkt og innviðafélagið en ég hef áhyggjur af verkefnum eins og þeim jarðgöngum sem þurfa meðgjöf frá ríkinu, sem eru langflest verkefni sem eru fyrir utan Hvítár-Hvítársvæðið. Hérna getum við verið að tala um Fljótagöng jafnvel. Við getum verið að tala um Fjarðarheiðargöng o.s.frv. Þetta eru verkefni sem þurfa samt sem áður meðgjöf frá ríkinu og mér finnst kannski ekki birtast alveg nógu skýrt ef við erum bara að horfa á fjármálaáætlun, sem við eigum eftir að fjalla um sérstaklega í þinginu, hvernig við munum tryggja þá meðgjöf, ef við erum að horfa á áætlanir fimm ár fram í tímann. Getur hv. þingmaður farið aðeins yfir það með mér, því að ég veit að hv. þingmaður situr líka, ekki satt, í fjárlaganefnd, hvernig þessi meðgjöf sem slík verkefni þurfa birtist í þessari fimm ára áætlun?