157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:41]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir samstarfið í nefndinni og góða spurningu. Þessar tölur liggja ekki fyrir. Þingið er í raun að búa til umgjörð núna um innviðafélagið. Við þurfum að virða sjálfstæði þess til að rýna verkefni, greina og svo er gerður samningur við innviðaráðuneytið sem við fáum til umfjöllunar í nefndum þingsins og fyrst að þeirri greiningu lokinni liggur fyrir hvaða verkefni og þá með hvaða meðgjöf. Það er ekki gert ráð fyrir einhverjum tilteknum meðgjafarverkefnum í tillögu að fjármálaáætlun en það þarf auðvitað að gera ráð fyrir því ef þau fara inn í innviðafélagið þannig að þau verði að veruleika, eða þá að gera ráð fyrir þeim á fjármálaáætlun og með breytingartillögu t.d. næsta vetur við samgönguáætlun þegar þetta liggur mikið skýrar fyrir. Við erum í raun bara að taka hér mjög mikilvæg skref, annars vegar með því að samþykkja samgönguáætlun og hins vegar frumvarpið um innviðafélag, en við eigum að búa okkur undir það að það sé alls ekki þannig að þar með þurfi ekki að hugsa um samgönguáætlun meir. Þvert á móti munum við, geri ég ráð fyrir, fá inn breytingar, afmarkaðar breytingar á samgönguáætlun samhliða umfjöllun um samninga í tengslum við innviðafélagið strax næsta vetur og svo jafnvel jafnt og þétt og reglulega út kjörtímabilið, og væntanlega lengur, til að nýta svigrúmið, segja í hvaða verkefni á að fara fyrir það svigrúm sem myndast en líka til að fjármagna þau verkefni sem þurfa eigið fé.